Top Gear
Að rífast við vélhjólamenn í rituðu máli er eins og að keppa í sjómann við þalídómíðbörn. Ég er komin með leið á því. Þið getið því sleppt því að skrifa „hið mikla yfirdrull“ að hætti þessa fávita í tölvupóstinn til mín.
Þið megið það svosem líka ef þið viljið. Mér er alveg sama.
Mér er hinsvegar ekki sama um Top Gear. Þvílíkur andans rjómi. Ég hreinlega er kolfallin fyrir þáttunum. Frábær blanda alvöru, sviðsetningar og gamanmála. Og ég, þrátt fyrir að hafa minni áhuga á bílum en á textasmíð Kristjáns Hreinssonar, get vel séð fegurðina í þessum bensínhákum.
Þessi þáttur hér er t.a.m. með þeim betri sem ég man eftir að hafa séð.
21 comments:
Hva... ertu búinn að kafna í eigin skít? Uss uss
Og hver er þá niðurstaðan? Eru allir vélhjólamenn morðingjar og vitleysingar sem þú vilt sjá dauða í einum risastórum blóðpolli?
Segðu okkur af hverju þér er svona óskaplega illa við alla mótorhjólaeigendur. Við eigum það inni hjá þér.
Farðu vel með þig.
S.
þetta hyski sem heldur úti þessu bloggi er bara allt í einu búið að sjá að það er ekki nafnlaust og er orðið skíthrætt og skíthært..
kæmi mér ekki á óvart að þau myndu loka núna þessu bloggi með þeirri afsökun að vernda "saklausa". En málið er bara að það eru nöfn á þessum "hitlista" sem standa að þessu bloggi.
þau ættu að geta haldið áfram að blogga á Grensásdeildinni..
úps,, þ.e. ef puttarnir verða nothæfir
Ei ríkur, rýkur ei!
Er þetta ekki í hans anda?
Lifi flarfið!
Mengella,
þú svaraðir því aldrei af hverju þú hefðir svona miklar áhyggjur af þessum lista.
Komdu nú með svar sem ekki vísar í Huxley.
vegna þess að listinn er réttur..
simple as that
vegna þess að listinn er réttur..
simple as that
Top Gear rúlar! Mengellus er hress :) Þið sem ekki kunnið að hafa gaman af þessu eruð illar.
Það er fátt meira hressandi í 300.000 manna fiskiþorpi þar sem allir eru meira eða minna meðvirkir að fá að segja hvað sem er, um hvað sem er... hvort sem er í skjóli nafnleyndar eða ekki.
Hér er orðheppin og greind mannvera á ferð sem viðrar sínar skoðanir/hugmyndir og á hverja skoðun eru ansi margir öfundsjúkir lúðar sem ættu að setja á sig bleyju og keyra hringinn í stað þess að afundast út í það að einhver kunni að skrifa betur en þeir.
sjæse...
Þú ert nú meiri meingellan.
Ekki gleyma því að svartur á alltaf leik. Sbr:
http://minnsirkus.is/userpage/Blogs.aspx?user_id=30931
Heyrðu elskan,
Hættu nú að leika þér að heilanum þínum og settu hann aftur á sinn stað.
Það gengur ekki að kenna eingöngu flautuleikaranum um ef einhver verður buffaður. Hann setti kenninguna fram fyrir nokkru síðan og þú hefðir mátt vita áður en þú froðufeldir á lyklaborðið að spjótin myndu beinast að þeim.
Af hverju mátti Mengella vita að einhverjir froðuheilar færu að hóta saklausu fólki líkamsmeiðingum? Mér er spurn. Þar sem hún er ekki á sama lága plani og þeir á hún eflaust í miklum erfiðleikum að sökkva niður á sama plan. Hefur auk þess eflaust mjög takmarkaðan áhuga á því.
Að taka nikkelhnakkana alvarlega er eins og að taka Leoncie alvarlega.
Ætli Leoncie hafi verið eðlileg áður en hún flutti til Sandgerðis? Það vekur mann til umhugsnunar.
Haldið ykkur við bensíngufurnar, það fer ykkur betur.
Maggabest. Hitler var ansi hress á köflum, átti sína góðu spretti. Orðheppinn, hnyttinn og greindur. En viti menn. Sumum var bara alls ekki skemmt. Voru reyndar ekki kallaðir lúðar þá - heldur júðar.
Vá, þetta er ekki kjánaleg samlíking.
Sammála með Top Gear - Það er greinilega hægt að hafa þátt um hvaða drasl sem er (þ.á.m. leiðinlegasta umræðuefni í heimi fyrir utan fótbolta), þegar jafn stórkostlegir húmoristar og þessir bretar eru við stjórnvölinn. Frábært hvað þeir fá líka þroskaheft pönkaðar hugmyndir um hvernig á að misþyrma þessum bílagreyjum.
Annað gott dæmi um leiðinlegt umræðuefni en góðan þátt er hið Íslenska (ótrúlegt en satt!) Geim Tíví á S1. Lúmskur húmör þessara tveggja nörda lyftir "potetially unwatchable" þætti á furðulega hátt plan.
Ég hef leyst gátuna! Mengella er Jeremy Clarkson.
Hefði átt að sjá þetta strax og hún... eh... hann tók mótorhjólagaura fyrir.
Merkilegt samt... 66.666% af þáttarstjórnendum Top Gear eru mótorhjólamenn, sem samkvæmt Mengellu og hennar vinum eru þ.a.l. réttdræpir morðingjar...
En já.. Top Gear er algjör snilld!
Þegar talað er um geðveiki er oftast átt við geðklofa og geðhvarfasýki. Einkenni geðveiki eru alvarlegar andlegar truflanir, svo sem ranghugmyndir eða ofskynjanir og skert raunveruleikaskyn. Þetta er nær alltaf svo alvarlegt að hinn sjúki getur ekki lifað eðlilegu lífi og þarf því að dveljast á geðdeild í mislangan tíma.
En hvað er geðveiki? Mikið hefur verið um það deilt hvernig skýra beri geðveiki og margar hugmyndir eru til. Ekki verður reynt að fjalla um allar þessar hugmyndir, heldur er áherslan lögð á tvö ólík sjónarmið: Annars vegar að geðveiki sé sjúkdómur og hins vegar að geðveiki sé ekkert annað en orð sem notað er yfir þá sem brjóta óskráðar reglur þjóðfélagsins.
Sjúkdómur eða samfélagsdómur?
Sú hugmynd að geðtruflanir séu sjúkdómar fékk byr undir báða vængi þegar menn komust að því að þær geta verið af líffræðilegum orsökum. Þótt hugmyndin njóti hylli enn í dag eru líka margir ósáttir við hana og halda því fram að geðtruflanir séu ekki sjúkdómar í sama skilningi og líkamlegir sjúkdómar. Almenn gagnrýni á sjúkdómslíkanið er að það sé ekki hægt að sanna að um sjúkdóm sé að ræða þegar afbrigðileg hegðun er athuguð.
Í læknisfræðinni er oftast hægt að greina bæði sjúkdómseinkennin og þá þætti sem valda þeim. Það er til dæmis hægt að ákvarða að einstaklingur hafi 39 stiga hita og að hann orsakist af tilteknum sýkli. Þegar sjúkdómslíkaninu er beitt á afbrigðilega hegðun er yfirleitt ekki hægt að meta bæði sjúkdómseinkennin og orsakir þeirra. Ákveðin hegðunarmynstur eða sjúkdómseinkenni eru flokkuð sem afbrigðileg og nefnd einhverju ákveðnu nafni. Þetta nafn er síðan notað sem skýring á því hvað olli sjúkdómseinkennunum. Þannig eru einkenni einstaklings sem haldinn er ofskynjunum og forðast öll félagsleg samskipti greind eða gefið nafnið geðklofi. Þegar spurt er hvers vegna einstaklingurinn sé haldinn ofskynjunum og forðist félagsleg samskipti er svarið oft: „Vegna þess að hann er geðklofi“. Þannig er nafnið geðklofi ekki bara notað til að lýsa ákveðnu hegðunarmynstri eða sjúkdómseinkennum heldur einnig talið orsök þeirra. Þetta er vitaskuld skýring sem bætir engu við þekkingu okkar á orsökum geðtruflana.
Myndir eftir listamanninn Louis Wain. Wain málaði köttinn lengst til vinstri þegar geðklofaeinkenni hans voru í lægð. Kettirnir til hægri lýsa ágætlega hugsana- og skynbrenglun listamannsins.
Þeir sem aðhyllast sjúkdómslíkanið andmæla þessari gagnrýni og halda því fram að þótt við vitum ekki hverjar orsakir margra geðsjúkdóma séu þá eigi framtíðin eftir að leiða þær í ljós. Sem dæmi má nefna geðtruflunina almennt slýni. Fyrir 1905 var ekki vitað hvað orsakaði sjúkdómseinkenni slýnis, sem eru meðal annars ranghugmyndir og skynvillur, en eftir 1905 uppgötvaðist að sárasóttarsýkillinn olli þeim.
Önnur rök á móti því að nota sjúkdómslíkanið til að skýra geðrænar truflanir eru að einkenni líkamlegra sjúkdóma eru allt annars eðlis en einkenni geðsjúkdóma. Einkenni líkamlegra sjúkdóma eru óháð lögum og reglum þjóðfélagsins. Lungnabólga og sárasótt lýsa sér á sama hátt í New York, París og Nýju-Kaledóníu. Öðru máli gegnir um einkenni geðsjúkdóma sem eru háð þjóðfélagsviðmiðum. Öll þjóðfélög hafa ákveðnar reglur og brot á þessum reglum eru kölluð ákveðnum nöfnum. Í gamla daga voru nöfn eins og nornir og djöfulóður notuð til að lýsa einstaklingum sem brutu reglurnar. Í dag er orð eins og geðveiki notað til að lýsa þeim. Geðveiki er því ekkert annað en orð sem notað er til að lýsa fólki sem hegðar sér á annan hátt en reglur þjóðfélagsins kveða á um að rétt sé.
Þegar einstaklingur hefur verið dæmdur eða um sinn verið kallaður geðveikur er nær vonlaust að losna við það nafn; það er eins konar stimpill. Hinn svokallaði geðveiki maður er settur inn á stofnun þar sem þess er vænst að hann hegði sér afbrigðilega. Hann byrjar að sjá sjálfan sig sem geðveikan og sjálfsmynd og sjálfsálit koðna niður. Þetta verður svo aftur til þess að hann hegðar sér á afbrigðilegan hátt til þess að uppfylla þær væntingar sem hann hefur um sjálfan sig og þær væntingar sem stofnunin hefur til hans. Ekki tekur betra við ef viðkomandi á þess kost að útskrifast af stofnuninni. Utan hennar þarf hann að takast á við fólk sem býst við hinu versta af honum, er hrætt við hann og vill koma honum aftur inn á stofnunina sem fyrst. Þessi þrýstingur verður oft þess valdandi að hann er lagður inn á ný.
Þeir sem aðhyllast þá kenningu að geðveiki sé ekkert annað en dómur þjóðfélagsins neita því ekki að þeir sem þjást af svokölluðum geðsjúkdómum líði illa eða í sumum tilvikum að þeim líði ótrúlega vel. Það sem þeir leggja áherslu á er að þekking fræðimanna og almennings byggist á því hvernig einstaklingurinn hagar sér, en ekki á vitneskju um það sem gerist innra með honum. Þegar maður hleypur nakinn og öskrandi um götur bæjarins er sú ályktun dregin að eitthvað sé að innra með honum, að hann sé sjúkur, jafnvel þó þetta innra sjúka ástand hafi ekki verið athugað.
Þeir sem halda því fram að geðveiki sé sjúkdómur andmæla þessari gagnrýni harðlega. Þeir benda á að þessi kenning fjalli nær eingöngu um það sem gerist eftir að einstaklingurinn hefur verið stimplaður geðveikur en takist ekki á við tvær grundvallarspurningar: Hvers vegna brýtur fólk óskráðar reglur þjóðfélagsins og hvers vegna eru það bara sumir, af öllum þeim fjölda fólks sem gerir slíkt, sem eru taldir geðveikir en aðrir ekki? Því er haldið fram að það sé of mikil einföldun, jafnvel rangt, að geðveiki sé ekkert annað en orð sem fólk notar yfir þá sem brjóta reglur þjóðfélagsins.
Máli sínu til stuðnings benda þeir á rannsóknir á geðklofa. Rannsóknir sem gerðar hafa verið á fólki með geðklofa benda sterklega til þess að geðklofi sé arfgengur, eins og lesa má um í svari Geðheilsu ehf. við spurningunni Af hverju stafar geðklofi? Fylgjendur sjúkdómslíkansins spyrja því: Ef geðklofi er ekkert annað en dómur yfir þeim sem brjóta skrifaðar eða óskrifaðar reglur þjóðfélagsins – hvernig í ósköpunum er þá hægt að skýra að þessi dómur virðist erfast?
Samspil
Hvar stöndum við þá? Er geðveiki sjúkdómur eða ekki? Líklegast er að bæði sjónarhornin hafi nokkuð til síns máls. Geðsjúkdómar eru flóknir og eiga sér líklega margþættar orsakir. Vitað er að margir geðsjúkdómar eiga sér líffræðilega orsök, en það er ekki þar með sagt að aðrir þættir hafi ekki áhrif. Það er til dæmis ótrúlegt að erfðir einar sér valdi geðklofa. Upplag annars vegar og streita vegna umhverfisþátta hins vegar orsaka vafalaust þessa veiki í einhvers konar víxlverkun. Viðbrögð annarra gagnvart fólki sem á við geðræn vandamál að etja hafa líka sitt að segja. Rannsóknir hafa leitt í ljós að hugmyndir fólks um geðveiki einkennast af fáfræði. Almenningur virðist hafa þá skoðun að þeir sem þjást af geðtruflunum séu hættulegir, óhreinir og heimskir. Það hjálpar áreiðanlega engum sem á við geðræn vandamál að etja að ná sér ef hann finnur þessi viðhorf gagnvart sér.
Af ofangreindu er ljóst að það er ekkert einfalt svar við spurningunni um hvað geðveiki sé. Geðveiki, eins og svo margir sjúkdómar, á sér margar orsakir. Erfðafræðilega getur einstaklingur átt það á hættu að verða geðveikur, en aðrir þættir eins og uppeldi, umhverfi og persónuleiki geta ráðið úrslitum um það hvort hann verði það eða ekki. Það má því segja að geðveiki sé flókið samspil erfða og umhverfis.
Þetta svar er stytt útgáfa greinar á vefsetrinu Persóna.is og birtist á Vísindavefnum með góðfúslegu leyfi aðstandenda þess. Með því að smella hér er hægt að nálgast ítarlegri útgáfu af svarinu.
Frekara lesefni á Vísindavefnum og myndir
* Eru geðsjúkdómar ættgengir? eftir Gylfa Ásmundsson.
* Hjá hvoru kyninu er geðveila meira ríkjandi? eftir Jón G. Stefánsson.
* Hver eru einkenni geðklofa? eftir Steinvöru Þöll Árnadóttur og Þórð Sigmundsson.
* Hvernig lýsir það sér að vera með oflæti eða maníu? eftir Heiðu Maríu Sigurðardóttur.
* Hvernig verkar geðlyfið Haldol? eftir Doktor.is.
* Mynd af manni í spennitreyju er af Mocking mental illness: A universal stigma? Tolerance in the news.
* Myndir af köttum er af New clues: Could viruses or myelin, the fatty insulation surrounding nerves, play a role in schizophrenia? Genome News Network. Myndin var upphaflega af The Huxley Institute for Biosocial Research.
Efnisorð geðsjúkdómar geðveiki geðraskanir lífvísindi: læknisfræði
Tilvísun Heiðdís Valdimarsdóttir. „Hvað er geðveiki? “. Vísindavefurinn 11.12.2005. http://visindavefur.hi.is/?id=5476. (Skoðað 28.3.2007).
Heiðdís Valdimarsdóttir,
sálfræðingur
Jafnvel merkilegra er að sá eini úr Top Gear þríeykinu sem er almennilega klikkaður þolir ekki mótorhjól.
Fyrir utan það, já!!
Úff, ég elti þennan Minn Sirkus link og hélt í alvöru að þetta væri djók... Ég held að ég hafi aldrei séð jafn illa skrifandi mann sýna heimsku sína jafn ítrekað og á þessari síðu.
Tysoninn virðist mikil mannvitsbrekka við hliðina á þessu!
Annars Mengella, keep up the good work.
Sæl öll
Já top gear einn af bestu þáttum veraldar. Nátturlega fyrir utan Heroes Lost bat...
Jú ég misti áhugan á bílum þegar ég skellti mér í mótorhjólasportið en top gear hefur vakið svo sannarlega áhuga minn. Mengella please ekki hætti skrifa?
Kv vfr700
Skrifa ummæli