2. janúar 2009

Aðdáendur Imbu

Í hvert sinn sem Ingibjörg Sólrún reynir ný fangbrögð á hráskinninu æpir hópur fólks í aðdáun. Sami hópur þegir þegar hún missir takið.

Ingibjörg opinberaði sig enn og aftur á gamlársdag sem hrokafulla og ósmekklega. Viðbrögð hennar við því eru að senda samstarfsflokknum eitraða pillu. Og fólkið hrópar vá. Alveg eins og það hrópaði vá síðast þegar Imba sá sig tilneydda til að senda slíka pillu. Hvenær var það? Það var eftir að Imba sagði fólkinu í Háskólabíói að það væri ekki þjóðin.

Sum sé, í hvert skipti sem Imba segir eitthvað heimskulegt sem líklegt er til að draga dilk á eftir sér – þá lemur hún á forsætisráðherra.

Heilalausu samfylkingarfíflin hrópa af fryggð. Þvílík dirfska! Þvílíkt þor! Þvílkur nagli!

Dirfskan er þó ekki meiri en svo að jafngildi því að narta í eistað á nauðgara sínum milli þess sem maður stynur af ánægju yfir að fá að totta hann.

Samfylkingin er dauð takist henni ekki að losna við Imbu og viðhlæjendur hennar.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hehehe...

Myndlíkingar Mengellu eiga áreiðanlega ágætt erindi í stjórnmálaumræðu.

Ég er sammála því að ISG var taktlaus þegar hún talaði niður til fundarmanna í Háskólabíói.

Þetta er nú einu sinni kona, sem gekk svo langt í viðhafnarviðtali við Moggann um árið, að segja að "lýðræði væri lífstíll!"

Hún hefur vissulega ekki átt alltaf jafn auðvelt með að tileinka sér þennan lífsstíl sjálf. En hún er slyng og nær yfirleitt að átta sig í tíma og breyta um kúrs ef hún hefur rangt fyrir sér. Það er mikill kostur.

Mér þætti gaman að vita hverjir af þeim stjórnmálaforingjum sem þjóðinni bjóðast um þessar mundir, Mengella hefur sérstakt dálæti á?

Innst inni verður hún kannski að viðurkenna með sjálfri sér að þar er Solla skást.

Enda sjálf alger Men-gella og jafvel sama blæti fyrir...

...pískum.

Mengella sagði...

Imba er ekki skásti stjórnmálaforinginn. Hún er sá langslakasti. Hún batnar ekkert við það að einstaka sinnum nái samflokksmenn hennar að tala um fyrir henni.

Maður sem kýs konur af því þær hafa stóran sníp, testósterónyfirflæði og skalla er ekki að leita að stjórnmálamanni, hann er að leita sér að einstæðri mömmu.

Imba er hugsjónalaus hrokagikkur, pólitískur vindhani og í ofanálag er hún dóni.

Skoðaðu feril hennar. Lestu viðtölin og greinarnar. Hún er upphæpaður froðusnakkur. Svar íslenskra krata við Blair.

Blair er löngu súrnaður. Imba er draugur að sama skapi.