24. september 2007

Skar

Skelfing var Denni veigalítill hjá Evu Maríu í gærkvöldi. Í stað þess að eldast með reisn og svamla varfærnislega í djúpri laug reynslu og þekkingar hefur hann smám saman setið eftir og horft á heiminn hverfa á braut. Eina haldreipi slíkra manna er afneitun og íhaldssemi, jafnvel afturhald.

Denni er orðinn að dæmigerðum heimsósómahrópanda í eyðimörkinni. Steingerð sál í trénuðum kroppi. Svegjanleikinn horfinn og biturleikinn breiðir úr sér.

Denni tilheyrir veröld sem var.

Engin ummæli: