10. september 2007

'Onrí biður að heilsa

Ekki er nóg með það að hinn þingeyski 'Onrí sé ásýndum eins og mörklatti í blóðmör og hégómlegur eins og páfugl meðal stélstýfðra – heldur hefur hann nú opinberað sig sem trúgjarna einfeldningssál. Að hann skuli trúa því að ég sé raunverulega hörundssár og hafi í raun sárnað þessi hortittur hans er með ólíkindum. Ég var aðeins að bregðast við undirskrift hans á danskortið mitt. Hann reyndist heldur úthaldslítill dansherra, sem von var.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er bara eitt s í hörundsár, Mengella mín.

Mengella sagði...

En tvö í hörundssár

Nafnlaus sagði...

Rétt er það. Svo eru þrjú s í hörundsssár og fimm s í hörundsssssár. Ekki vera hörundsár.