15. október 2008

1000101110110010110010010111000000000000



Sex hundruð milljarðar eru upphæðin sem við gætum þurft að borga vegna útrásar bankanna ef allt færi á allra versta veg.

Það er upphæð sem er auðvitað miklu stærri en íslenska peningakerfið. Hún gæti aðeins orðið til sem rafræn stærð. Hún myndi þá heita:

1000101110110010110010010111000000000000

En ef hægt væri að slá þessa upphæð sem krónupeninga þyrfti 1.800.000 tonn af kopar og 600.000 tonn af nikkeli. Það væri svo engin smá krónugomma sem yrði til. Hægt væri að gera úr krónunum brú frá Lækjartorgi til Trafalgar Square sem væri 146 metrar (og sextíu og sjö sentimetrum betur) breið.

Ef krónunum yrði raðað í einfalda röð myndi sú röð ná rúmlega 33 sinnum til tunglsins.


Það væri auðvitað miklu praktískara að prenta 5.000 kalla. Þeir myndu ekki vega nema 120 tonn. Og ef þeim væri raðað langsum væri röðin ekki nema 18.600 km löng. Það þýðir að hægt væri að búa til 14 seðla breiða röð fimmþúsundkalla eftir hringveginum (eða 10 seðla breiða röð til London).

13. október 2008

Bloggætt Binga

Bingi er byrjaður að blogga. Hann er að reyna að auglýsa þátt sinn, Markaðinn.

Nú ætla ég ekki að fjalla um tilfinnanlegan skort Binga fyrr og nú á tímasetningum. Maðurinn sem reyndi að koma síðustu auðlindum Íslendinga í hendurnar á útrásarvíkingunum og byrjaði með þátt um markaðinn á nákvæmlega sama tíma og markaðurinn hætti að vera til. Bingi er eins og pólskur gyðingur um 1930 sem ákveður að leggja fyrir sig skorsteinasmíðar. Alltaf eitthvað annarlegt við tímasetningar hans.

En ég ætla ekki að fjalla um það. Ég ætla að fjalla um bloggstílinn.

Bingi bloggar eins og Stebbi Fr.

Færslurnar eru andlausar endursagnir innrammaðar með hálfgegnsærri kýrvömb tilfinningalífs bloggarans.

Hér er tímamótafærsla:

Fasteignablað Moggans í dag er átta síður. Þar af er ein heilsíðuauglýsing frá blaðinu sjálfu. Þetta er örugglega til marks um ástandið á fasteignamarkaðnum.

Þar hreyfist ekkert. Enginn kaupir, allrasíst á meðan enginn veit hvað er nákvæmlega framundan í íslensku efnahagslífi.

Fasteignaspekúlantar, sem ég hef rætt við síðustu daga, eru mjög svartsýnir. Segja að sá eiginfjárbruni sem hafi orðið síðustu vikur, tekjutap margra og aukið atvinnuleysi muni setja svip sinn á fasteignamarkaðinn svo um munar næstu mánuði og misseri.

Raunar segja þeir þetta þegar komið fram. Verðlækkun upp á tugi prósenta hljóti að vera í pípunum.

Verði sú raunin, mun þorri íslensku þjóðarinnar verða með áhvílandi lán á sínum húseignum sem eru mun meiri en sem nemur söluverðmætinu.


Til hvers? Hvað rekur manninn til að slá inn aðra eins bráðaugljósa undanrennu?

Og ekki eru nýju færslurnar skárri. Tveggja línu inngangar að löngum beinum tilvitnunum.

Stundum hefði ég viljað að netheimar hefðu hrunið en ekki peningaheimarnir.

11. október 2008

Upphæðin sem við ætlum (ekki?) að stela frá Bretum


Þrátt fyrir að aðeins brot af innistæðunum ICESAVE sé tryggt af okkur, Íslendingum, þá er það engu að síður væn upphæð. Tveir komma tveir milljarðar punda samkvæmt breskum fjölmiðlum.

Þessir tveir komma tveir milljarðar eru samt ekki nema hluti af innstæðunum sem nú er hlaupist frá. Og út af þessu varð Gordon Brown æfur. Hann hélt að Ísland ætlaði ekki að borga sinn skerf.

Ég legg til að við borgum ekki krónu og njótum þessara peninga. Hér eru nokkrar góðar hugmyndir:

Fyrst kaupum við Magna Carta. Hún kostar 21 milljón dollara og er dýrasti texti alheimsins. Bretar snobba voðalega fyrir henni og ef þeir eru eitthvað erfiðir getum við kveikt í henni, bara til að ergja þá.


Þá kaupum við dýrasta málverk sögunnar, No. 5, 1948, eftir Pollock. $150 milljón dollarar farnir í viðbót.


Og til að toppa okkur snúum við upp á handlegginn á Frökkum og kaupum Monu Lisu fyrir $670 milljónirnar sem hún er metin á. Þeir gefa sig í Louvre, hafa ekki einu sinni efni á að tryggja hana.


Einhversstaðar þurfum við að gista þegar við erum í Bretlandi að eyða pundunum okkar og við kaupum því dýrasta hús eyjanna á andvirði $119 milljón dollares.



Dýrasti hamborgari heims kostar 200 dollara. Splæsum einu stykki á hvern íslending. $62 millur.



Og uppar þurfa að eiga flottar tölvur. Splæsum nýrri MacBook Pro á hvern íslending. Það er tífalt dýrara en hamborgararnir.


Svo legg ég til að við gerum alla íslenska alþingismenn að túristum. Kaupum far fyrir þá út í geim með fyrstu almennu geimferðaflauginni á næsta ári (það verður víst að borga báðar leiðir). $12,6 milljónir.



Fyrir okkur hin kaupum við stærstu farþegaþotu heims, Airbus A380. Það tekur hana akkúrat ár að flytja alla Íslendinga út til Bretlands ef hún fer eina ferð á dag. Hún fer samt ekki tóm til baka. Hún flytur 1,1 milljarð króna til baka í hverri ferð og verður þá eftir árið búin að flytja báða milljarðana sem við ætlum að stela af Bretum. $320 millur á reikninginn.


Það er kannski hægt að fá Neverland-búgarðinn ódýrt. En við þurfum ekki að nurla. Kaupum hann fullu verði. $120 millur.



Svo er full ástæða til að kaupa 10 dýrustu bílategundirnar sem hægt er að finna. Tíu bílar = $5,9 milljónir.




En nú dugar ekkert hálfkák. Við kaupum nú eitt stykki ný Hvalfjarðargöng. Og fyrst við erum að því, ein slík göng í hvern landsfjórðung. $280 millur.


En það dugar ekki að bora undir alla firði. Við kaupum Grímseyjarferju, eina í hvern af hinum 48 íslensku fjörðum (líka þá sem við borum undir). $156 millur.


Svo er auðvitað ótækt að slíkt ríki sé rekið með halla. Við tökum frá pening til að borga áætlaðan halla á fjárlögunum fram til 2011. $531 milla.

Og nú er peningurinn að verða búinn. Við skulum samt láta okkur hafa það að kaupa tvær tunnur af olíu fyrir hvern Íslending í hverjum mánuði næsta árið. $673 millur.



Og þá höfum við eytt 3740 milljónum dollara eða jafngildi 2200 milljóna punda.

(Uppfært: Sem er ríflega 24 sinnum meiri peningar en til eru á Íslandi skv. þessu sem er fengið héðan.)


En Brown þarf ekki að örvænta. Við ætlum auðvitað að borga þetta sjálf.

8. október 2008

Kvenlæg kreppugildi


Feministar hafa vaknað til lífsins eftir að hafa greint skræka rödd foringja síns, Steingríms Joðs, innan úr híði sínu. Nú er lag fyrir þá. Lag að því tæi þegar vonlausir vonbiðlar ganga með grasið í skónum á eftir öllum sem hlotið hafa tilfinningalegt skipbrot.

Nú kalla feministarnir eftir því að fjármálalífið hafi hliðsjón af kvenlægari gildum en hingað til.

Horfum framhjá því að það er erfiðara að máta slíka hugmynd við afneitunina um karl- og kveneðli en að fá bankamann til að skipta slétt á krónu og evru. Látum nægja að horfa á þá einföldu staðreynd að feministarnir nenna ekki einu sinni að lyfta appelsínuhúðinni af sessunum til að breyta einhverju hingað til.

Aðferð feminista í viðskiptum hefur verið tvískipt, og ræðst skiptingin af testósterónmagni viðkomandi. Hörkufeministar stunda viðskipti á nákvæmlega sama hátt og karlar. Hinir stunda viðskipti eins og bænalíf.

Feministar vilja helst geta merkt nafnið sitt með bleiku dollaramerki í símaskránni. Þeir vilja svo að eigendur stórfyrirtækja hringi í þá og bjóði þeim að koma og vinna fyrir stórfé.

Þeim finnst að sitjandi krákur eigi að fá jafn marga orma og þær sem fljúga vegna þess að krákur hafi nú rass ekki síður en vængi - og því hljóti að eiga að verðlauna þá sem nota þær guðsgjafir ekki síður en hinar.

Á sama hátt finnst ljótu fólki sjálfsagt bæði sanngjarnt og eðlilegt að það njóti kynhylli til jafns við okkur hin.

En heimur feminista og ljótra (sem furðu oft er einn og sami heimurinn) lyktar af öllu öðru en kaffi. Heimur þeirra er þokuveröld. Uppástungur þeirra hafa álíka mikið vægi fyrir annað fólk eins og uppástungur frjálslyndra, hvítasunnumanna og annarra fasista.

Þótt feministar telji beitingu ofbeldis gjarnan karllæga dygð, þá hefur ofbeldi ætíð verið þeirra eina leið að árangri.

Lykillinn að öllu starfi þeirra hefur verið að komast í þá aðstöðu að geta neytt aðra til betrunar. Hvort sem þeir vilja það eða ekki.

Áður en feministum er hleypt af stað með umkvartanir og umbótatillögur er rétt að krefja þá svars við einni einfaldri spurningu:

Ef samfélagið hefði verið stórlega bætt með kvenlægari viðskiptaháttum, bæði mælt í efnislegum og óefnislegum árangri, hvaða afsökun hafa feministar þá fyrir því að hafa ekki lyft litlaputta til að stuðla að þessum bótum?

Fyrr en gott svar kemur við þessu ber þeim að halda kjafti.

Að flengja þroskaheftar konur ... fast


Það er að mörgu leyti rökrétt að vana vangefna. Það er skynsemi í náttúrunni og mér er til efs að það hafi verið fyrr en frekar nýlega að vangefið fólk fór að hitta hvert annað í stað þess að vera tjóðrað við hestasteina hvert í sínu horni.

Fólk sem ekki kann að leysa hnút á auðvitað ekki að fjölga sér. Það er mjög tæpt að það eigi að njóta líkamlegs samneytis við aðrar manneskjur. Flest slíkt fólk mundi vafalaust una hag sínum vel við fjölbreytileg sjálfsfróunartilþrif á dauðum hlutum og einstaka skoltröku dýri.

Í dag er netið orðið svo einfalt að jafnvel vangefið fólk þvælist þar um, sjálfu sér til ævarandi háðungar að sjálfsögðu. Með tveim fingrum hnitar það hring yfir sér- og samhljóðum uns þokukennd hugsunin hefur hnoðað saman setningu eða tvær.

Svo er ýtt á Publish.

Það er illmögulegt fyrir Persónuvernd að loka á skrif þessa fólks. Þó eru ærin tilefni. Raunar er svo komið að fýsilegt verður að telja að stofna sérstaka netheima fyrir vangefna. Ég sé fyrir mér að forsíðu heimanna sé læst með nokkrum laufléttum spurningum sem öllum þarf að svara vitlaust til að fá aðgang.

Þar inni getur vangefið fólk haldið áfram að birta myndir af helbláum, andvana börnum sínum. Þar getur Tryllirinn haldið áfram að trúlofa sig á tveggja vikna fresti. Þar getur Korntoppurinn haldið áfram að spilla kvennamálum Tryllisins. Þar getur Jens Guð haldið áfram reyna að hylja það að hann rúnkar sér yfir afrekum Ed Geins og Ted Bundys.


Við hin verðum svo að læra að lifa án gullkorna eins og þessa úr væntanlegri bók Tryllisins, Hvernig gerirðu konurnar þínar hamingjusamar?:


Tryllirinn er að verða vel skafinn 127 kg að skjóðuþyngd og dömurnar hugsa sér gott til glóðarinnar. Spurning hvort að ég nenni eitthvað að æfa en þá helst til þess að auka flengingarkraftinn í bólinu :) Það eru tvær sem hafa kvartað yfir of miklum flengingarmætti en þá var þeim bara svarað að hætta þessu væli, það er annað hvort að gera það almennilega eða sleppa því …….

Sérhannaður bíll fyrir konur

Ef eitthvað er að marka Morgunblaðið þá hefur bílaframleiðandi í Íran hafið framleiðslu á bíl sem er sérhannaður fyrir konur.

Mér þykir einsýnt að hann sé kominn í myndinni hér að neðan.

7. október 2008

Rúbluþjófurinn Bjórgólfur

Ákvörðun Rússa um að borga Íslendinga út úr kreppunni minnir um margt á ákvörðun Símans um að kaupa Skjá einn.

Sporgöngumenn spörfugla

Íslendingur í útrás

Íslendingar eru, voru og munu alltaf vera ófærir um sjálfsbjörg. Þetta er einfalt genetískt dæmi. Þá skortir eirð til að draga fram lífið. Þeir ráfa um þar til þeir ramba fyrir ætternisstapa. Það er eitthvað að heilastarfseminni.

Á víkingaöld sigldum við til Bretlands, myrtum þar bændasyni og nauðguðum systrum þeirra.

Nú nauðgum við gírugum ellilífeyrisþegum, hverra áar kreistust úr sköpum téðra systra .

Árið 1262 missti þjóðin sjálfstæði sitt í skiptum fyrir vöruskipti við útlönd. Í dag endurtekur sagan sig. Í þetta skiptið ætlum við að gangast á hönd viðurstyggilegasta dofranum í ófríðum flokki þrjóta.

Maður verður að toppa sig.

20. september 2008

Nýi þátturinn á Skjá 1

Skjár 1 hefur verið iðinn við að veita til landsins kröppustu öldum ljósvaka erlendra þjóða. Ég sá nýjustu útgáfuna, örlítið stytta, í gegnum netið.

Þátturinn heitir Dægurflugan og er íslensk hliðstæða þáttarins The Biggest Loser.


Þátturinn er með léttu ævintýrasniði. Kynnirinn er í gervi kynhverfs búálfs, í hljómsveit eru svartálfar og söngvarar eru af blómálfakyni. Yfir hausum þeirra iða smáflugur á formi eróbikkþjálfara.

En auðvitað er þátturinn fyrst og fremst um keppendurna. Þeir eru, eins og eðli þáttarins gefur til kynna, akfeitustu bollurnar í brúnni sósu þjóðarinnar. Afkáralegar fituhjussurnar standa kiðfættar á sviðinu á meðan áhorfendur heima iða af andstyggð eða samhygð, eftir aðstæðum hjá hverjum og einum.

Það verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu.

Í öðrum fréttum er það að segja að það kemur vissulega ekki á óvart að nú hafi fyrsta lambið í netmunnsöfnuði af skóla Jóns Vals verið tekið á beinið fyrir að misþyrma börnunum sínum. Það sem kemur á óvart er að sérsveitin hafi ekki verið notuð til að gera hárrétt tímasetta innrás hjá öllum sköpunarsinnunum í einu. Nú eru hinir að losa sig við sönnunargögn á fullu.

16. september 2008

Allir vilja Mein Kampf kveðið hafa

4. júlí 1924

Við þurfum styrka hönd í Þýskalandi. Hættum hálfkáki og orðagjálfri og byrjum að vinna. Rekum burt júðana, sem ekki vilja gerast venjulegir Þjóðverjar. Dönglum rækilega í þá í leiðinni. Þýskaland þarfnast einstaklings, manns - eins og jörðin þarfnast sumarregnsins.

-Úr dagbókum Jósefs Göbbels.

Það er einkennilegt til þess að hugsa að kreppan er ekki fyrr farin að sleikja fjörugrjótið í Faxaflóa en sú krafa fær rödd, og raunar raddir, að nú eigi forsætisráðherrann okkar að verða dálítið myndugur. Geir Haarde hefur, svo ótrúlega sem það hljómar, þurft að svara fyrir það í viðtali hvernig þjóðin eigi að geta treyst honum til að leiða hana út úr ógöngum.

Freud myndi segja að hér væru hinir veigaminnstu meðal þjóðarinnar að kalla á babba sinn. Myrkfælnin er mörgum blásin í brjóst.

Það er löngu orðin klisja að bera samfélagslega ágalla við Þriðja ríkið. Svo margþvæld klisja að hún hefur glatað öllum sínum lit. Við erum hætt að sjá líkindin. Við erum valblind.

Þjóðin hefur tekið ranga beygju þegar sú rödd fær að óma í fúlustu alvöru að ætlast sé til þess að Forsætisráðherra leiði þjóðina. Við komum okkur í þessa stöðu sjálf. Það er okkar að koma okkur út úr henni.

Það er engin töfralausn til. Okkur líður ekkert betur þótt við afsölum hluta af frelsi okkar til æðra valds. Áhyggjuframsal endar alltaf í nauðung. Það er frelsi fólgið í áhyggjunum. Áhyggjurnar krefja okkur um aðgerðir. Aðgerðalaus maður kann að vera áhyggjulaus, en hann er strámaður.

Það er ömurlegt til þess að hugsa að kreppan virðist ætla að kalla fram hjá heimsbyggðinni (og þjóðinni) klassísk, þrautreynd kreppuviðbrögð. Viðbrögð sem aldrei hafa skilað neinu nema sístækkandi harmi.

Er nokkuð fyrirsjáanlegra en að vilja smeygja sér í hálsakot Evrópu? Er nokkuð fyrirsjáanlegra en að byrja að amast í útlendingum, vilja reka þá úr landi og dangla aðeins í þá í leiðinni? Er nokkuð fyrirsjáanlegra en að gera kröfu um sterkan landsföður með leiðandi hönd?

Hugarvíl drepur niður frumlega hugsun. Það sem við þurfum núna er frumleiki. Það eru skrilljóin tækifæri.

Krónan er hrunin niður í kjallara. Það þýðir að útlendingar ættu að standa í röðum eftir að fá að eyða aurunum sínum hér. En enginn gerir út á þau mið. Það eru allir of uppteknir af því að væla.

Aular!

13. september 2008

Herr Magnússon

Það má meira en vel vera að hyski haldi til í Breiðunum í Njarðvík. En það hyski kemst ekki með tærnar þar sem Herr Magnússon hefur hælana. Það er eitthvað verulega mikið að manni sem sér ástæðu til að trana sér fram til þess að rægja „ólöglega“ innflytjendur áður en rykið sest eftir glórulausa aðför Geheime Stadtspolizei.

Maður eins og Herr Magnússon er að performera fyrir sérstaka gerð af áhorfendum. Ljóta lýðinn sem gleðst inn að hjartarótum við að heyra enduróm eigin skoðana. Haugfúla hyskið sem heldur að sannleikanum sé haldið á kafi af pólitískum skýjakóngum. Bitru bjánana sem halda að Herr Magnússon og slíkir kónar séu til marks um það að sannleikur þeirra sé eðlisléttari en vatn – og hann skjótist því alltaf upp á yfirborðið aftur.

Það segir sig sjálft að „ólöglegir“ innflytjendur á Íslandi geta ekki verið stórt vandamál þegar lögreglan annar því að gera rassíu hjá þeim öllum í einu. Ekki einu sinni þótt þeim takist með vafasömum (og jafnvel ólöglegum) aðgerðum að nurla saman andvirði smábíls.

Tjón samfélagsins vegna þessa fólks er snöggtum minna en tjónið af elliæra kvótagreifanum sem ákvað að hann langaði að halda áfram að éta fiskinn sem hann var búinn að selja öðrum. Aflinn sem hann stal frá þeim sem borguðu undir hann belti og bát var miklu meira virði en peningarnir sem svartstakkarnir tóku af óvelkomna lýðnum.

Herr Magnússon er hinsvegar hæstánægður með „ólöglega“ arðræningjann á Suðurnesjum. Snöggtum ánægðari með hann en „ólöglegu“ innflytjendurna.

Honum finnst nefnilega það vera mannréttindi að fá að vinna við það sem maður vill. Mannréttindi sem eru æðri rétti einstakra, fákunnandi þjóða. Mannréttindi sem helgast af sameiginlegri heimssýn mannkyns (eða þess hluta mannkyns sem hefur efni á því að hafa heimssýn).

Honum finnst hinsvegar jafn augljóst að það séu ekki mannréttindi að mega reyna að tryggja sér betra líf í öðrum heimshluta.

Það er frekja. Og enn meiri frekja er að heimta að fá að vinna við eitthvað í nýja heimshlutanum.

11. september 2008

Breiðavík. Ó, Breiðavík!


Nú eru Breiðavíkurdrengirnir lítið hressir. Þeir ætla ekki að þiggja svo litlar bætur að þær rúmist í rassi (og hafa verður í huga að Breiðavíkurdrengir eru af skiljanlegum ástæðum með heldur víða rassa). Þeir vilja millur, tugmillur. Þeir vilja yfirgefa þennan heim eftir að hafa verið kóngar einn dag.

Það á að borga þeim sem teknir voru í rass og það á að borga þeim sem tóku í rass. Það á að borga öllum. Rökin: Hið opinbera setti þá á vondan stað og fylgdist ekki nógu vel með.

Rökin halda. Þessir menn eiga siðferðilegan rétt á bótum. Hið opinbera er ábyrgt.

Það átti að fylgjast betur með.

Einhverjir Breiðavíkurdrengjanna tvístíga nú í gættinni og heimta aurinn sinn. Þeir finna seðlalykt.

Ríkinu ber skylda til að rannsaka misgjörðirnar. Og rannsaka þær vel. Líka það sem er óþægilegt.

Sumir gera mikið úr því hve margir Breiðavíkurmanna hafa kálað sér. Vilja jafnvel meina að þar hafi saklausir menn verið teknir af lífi. Það má vera rétt.

Ógæfufólk er samt að kála sér í hverri viku. Líka unglingar. Að sækja jarðarfarir er hluti af starfi allra sem taka að sér hópa af illa settum unglingum eða öðru fólki. Enginn er svo óforskammaður að heimta af þeim bætur.

Á ekkert að tala um ábyrgð foreldranna? Hve margir tugir af fólki tóku á móti lúbörðum og útriðnum börnum eftir vist - og gerðu ekki neitt. Sögðu ekki neitt.

Hvað væri þessi kynslóð án Breiðavíkur?

Það var mýta að á Íslandi gætu allir komist til manns. Nema auðvitað áfengið eða geðveikin lægju í leyni. Nú á Breiðavík að vera ein af óvinunum. Undantekningin.

Nú eru ekki lengur harðhentir stýrimenn og kynvilltir hásetar hjá Féló. Nú eru það estrógendvergar og prjónakerlingar. Það er hin nýja nálgun. Nálgun sem á meira skylt við sinnuleysi en úrræði.

Og nú verða glæpemennirnir fyrst til. Glæpahringir ungra, vanræktra manna sem þekkja aðra unga og vanrækta útlendinga.

Þeir hefðu kannski haft gott af eins og ári á Breiðavík?

Árni lygari Jónsen

Kvöldgestir Jónasar Jónassonar eru skemmtilegir þættir. Jónas er fyrir löngu hættur að velta sér, viðmælandanum og hlustendunum upp úr endalausri drykkju þeirra sem við hljóðnemana sitja. Nú talar hann helst ekki við fólk um annað en gleymt, [bíííp] fólk sem starfaði á útvarpinu og líf eftir dauðann.

Hið illskiljanlega er hve sólginn hann hefur verið í að draga í stúdíóið [bíííp], [bíííp] og [bíííp] fólk upp á síðkastið. Má þar í fljótu bragði nefna Kolfinnu Baldvinsdóttur, [bíííp], Jórunni Jensen, sem bæði er [bíííp]og [bíííp]yfirmaður velferðarmála í Borginni og Árna [bíííp]Jónsen.

Árni er [bíííp]og [bíííp]sem hefur þau einu kynni haft af föður sínum að hitta hann fullorðinn í [bíííp]ferðum beggja til Flórída nokkrum sinnum. Árni er líka alþekktur [bíííp]og [bíííp] [bíííp]. Árni er auk þess [bíííp]og [bíííp].

Árni er [bíííp]sort af manni. [Bíííp][bíííp]blöndunar erfðaefnis. Pabbi hans hefði betur stýrt [bíííp]á sér eitthvað annað.

Árni hefur [bíííp]mann og annan. Stundum hefur [bíííp]hann hreykt sér af því. Talað eitthvað um sjómannasið og glott við tönn.

Þótt hann hafi [bíííp]frystitogara er hann langt frá því að vera [bíííp]í stjórnmálum. Þar er hann ekki aðeins [bíííp]heldur til [bíííp][bíííp].

Það besta sem hefur komið fyrir Árna var að vera dæmdur í fangelsi. Því það er forsenda þess að hann þykist hafa einhverja heimtingu á því að fallega sé um hann talað.

Það sem hlýtur þó að mega segja um Árna Jónsen hér eftir sem hingað til er að hann er [bíííp]og [bíííp]. Hann hefur aldrei verið dæmdur fyrir [bíííp](eða hvað?) og hann fullyrðir enn að hann sé saklaus. Það þykir sannað fyrir dómi að hann er sekur. Hann er því [bíííp][bíííp].

Nýfangað líf þess endurborna þvær ekki af honum þann stimpil.

(Tillaga um framreiðslu [í engri sérstakri röð]: skítlegasta, lygari, ótýndur, ótalandi, þungavigtarmaður, klámstjörnu, ógagns, stæks, áflogaseggur, flotkraft, barið, dautt, óáhugavert, heimskt, leiðinlegt, latur, líkamsárásir, óskrifandi, helvískan, bastarður, hórdómsbarn, dularfullum, þjófur, ofbeldismaður, óþarfur, skaufanum.) [Viðbætur eða aðrar uppástungur þegnar].

9. september 2008

Eitraður túrban

Woodward heldur að Bandaríkin séu svo gott sem búin að vinna stríðið í Írak með nýju herbragði. Hryðjuverkamenn stráfalla þegar leynivopninu er beitt. Það má ekki segja hvert vopnið er, því þá gæti það hætt að virka.

Aðrir segja þetta argasta bull.

Ég held ég viti hvert vopnið er. Í öllu falli veit ég hvað það ætti að vera. Það ætti að vera eitt af neðantöldu.

Klaufagas

Flugvél er flogið yfir Bagdad og baneitruðu taugagasi úðað yfir íbúana. Einu móteitrin eru svínakjöt og Big Red tyggjó.

Hrikalega Indælar Völskur

Eyðnismitaðar rottur eru dáleiddar til að bíta fólk ef þær sjá stafina K, Ó, R, A og N.

Sniper

Ungar múslimastúlkur eru teknar úr flóttamannabúðum og settar í leynilegan uppskurð. Þeim er svo varpað í fallhlíf inn á svæði uppreisnarseggja. Þegar skorinn er af þeim snípurinn gusast út sveppagas.

Stjörnur og strípur

Amerískir fánar eru vættir í eitri sem verður að gastegund ef fáninn er brenndur.

FónýSony

Það verður kaldur dagur í helvíti þegar múslimar læra að gera sínar eigin upptökuvélar. Þess vegna og þess að terroristar hafa sérstakt dálæti af að taka upp árásir og einræður þá hafa allar upptökuvélar síðan 2003 verið sérútbúnar. Þegar kveikt er á upptökuvél sendir hún örbylgjur frá sér. Sé amerískur her nærri getur hann horft á allt það, sem vélinni er beint að, í beinni útsendingu.

8. september 2008

Guðfræði


Páll Skúlason lét í ljós þá frómu ósk að Háskólinn mætti líkjast persónu Sigurbjarnar Einarssonar. Var hann þá hvorki að vísa til fúkka og steypuskemmda né ævafornra innréttinga. Honum þótti eitthvað í fari gamla mannsins lýsandi fyrir góða stofnun.

Nú er Páll Skúlason auðvitað álíka byltingarkenndur og bolli af Bragakaffi og því ekki að furða að honum þyki akkur í því að Háskólinn angi af mölkúlum og gömlum göldrum. Það væri þó ekki vanþörf á því að einhver Herkúles tæki að sér að veita drullulækjunum í Vatnsmýrinni í gegn um Aðalbygginguna. Þaðan þarf að sópa gömlum draugum – sér í lagi guðfræðideildinni í heild sinni.

Guðfræði er óverjandi háskólanám. Hún stangast á við allt það sem æðri menntun stendur fyrir. Guðfræði er ekki rannsókn á trú heldur rannsókn í trú. Kapellan í Háskólanum er fúll gullgerðarpottur fornra tíma. Í guðfræði gutla kjánar í göldrum.

Bjarteygir aular með Biflíu undir koddanum eru íslensk hliðstæða kínverskra stúlkna með reyrða fætur eða umskorinna arabíukvennda. Allt háskólanám um Guð sem útskrifar fólk jafn trúað og það var í upphafi er glundur. Ómerkilegt drasl. Sammannleg geðveiki í sparifötum.

Það hefði mátt grafa guðfræðina með gamla manninum.


Sneglu-Halli

Þegar Breiðavíkurdrengurinn sagði forsætisráðherra að troða bótunum upp í rassgatið á sér flaug mér Sneglu-Halli í hug, n.t.t.:


„[V]orkunn þykir mér yður að þér viljið svo selja sem þér keyptuð.“

Málamyndahjónabönd



Viðar Helgi Guðjónsen hefur þungar áhyggjur af fjölgun hentihjónabanda á Íslandi. Sem vonlegt er. Úrhrök allra landa eru löngu farin að sjá sóknarfæri þar sem lausgirtasta landvættin, íslenska konan, er annars vegar, .

Svertingjar hafa löngum litið á hvítar konur sem hið æðsta góss. Það kemst ekki hvaða auli sem er í rekkjuna hjá dóttur plantekrueigandans. Það hefur lengi verið vitað að íslenskar konur (og raunar flestar hvítar konur) hafa gernýtt sér þennan veikleika blámanna. Byrði svarta mannsins er feit, hvít kona – gjarnan ljót.

Feitar, hvítar konur eru andstyggilegasta birtingarmynd arðræningjans í nútíma samfélagi. Það er ekkert ógeðslegra en kona, sem nýtir sér djúpstæða minnimáttarkennd blökkumanns til að ota að honum rauðbirknum og margsveppasýktum sköpunum angandi af útferð. Og svertingjarnir vita ekki betur. Halda að þessir mörkálfar séu raunverulega kynverur. Sem akfeitt fólk er vitanlega ekki.

Það á að taka á hentihjónaböndum á sama hátt og vændi. Afnema refsirammann fyrir fórnarlömbin, saklausu útlendingana. Það flytur enginn til Íslands að gamni sínu. Það sefur enginn hjá íslenskri fituhjussu viljandi – a.m.k. ekki edrú. Það á að bjóða slíkum mönnum upp á ráðgjöf. Byggja yfir þá athvarf.

Kerlingunum á að refsa. Þungar refsingar fyrir þungar konur sem nýta sér eymd útlendra karla til að svala ofdekruðum girndum sínum. Tímabundin svipting ríkisborgararéttar er góð hugmynd. Konan er útlæg á meðan fórnarlambið er tekið inn í staðinn. Standist fórnarlambið almennt skilorð og helst í vinnu og af sakaskrá nýtur það framvegis ríkisborgararéttar frenjunnar sem eitt sinn dró það á tálar. Reynist fórnarlambið drullusokkur í dulargervi er það rekið úr landi – og konan tekin inn aftur. Hún gæti hafa verið ginnt.

7. september 2008

Miklir hugsuðir


Flestir Íslendingar þekkja ekki gáfulega hugsun þótt þeir séu löðrungaðir með henni.

Tveir vitringar hafa verið í sviðsljósinu nýlega. Annar með stærri tungu en heila. Hjá hinum er því öfugt farið.

Sigurbjörn biskup er loksins dáinn. Gamall maður síðan hann var svarthvítur. Hámenntaður og lét sig ekki muna um að romsa upp úr sér löngum (og leiðinlegum) einræðum. Auðvitað löngu orðinn kalkaður á öllum andans vaxtarlínum. Steingervingur með liðuga tungu. Flutti sömu ræðuna í ótal útgáfum áratugum saman. Hann saknaði nítjándu aldarinnar og nítjánda öldin saknaði hans. Nú er hann kominn heim.

Ólafur fyrirliði hefur stærri heila en tungu. Málhaltur Gunnar Dal. Náttugla að reyna að kveikja á kerti með logum stjarnanna. Engar hugsana hans nálgast það að vera merkilegar en hroðvirknisleg framsetningin ljær þeim falska dýpt. Í þoku geta þúfur virst fjöll.

Báðir hugsuðirnir töldu sig hafa fundið glufur í vefnaði veruleikans. Nærsýni þeirra kom í veg fyrir að þeir sæju fínustu þræðina.

Þegar andleg áreynsla þjóðar hefur öldum saman beinst að því að finna betri leiðir til að ræsa fram land, rúnka griðungum og finna rímorð, þá er ekki nema von að jafnvel hænur teljist fleygar.

Ljósmæður


Í kreppu þarf að skera burt alla sílspikaða milliliði og aðrar afætur. Ljósmæður eru þar fremstar í flokki.

Ljósmóðir er eins og stöðumælavörður sem ekki er treyst fyrir sektarmiðabók. Hún tekur á móti börnum sem koma sér í heiminn sjálf. Séu einhverjir misbrestir á því gólar hún á hjálp og inn kemur einhver sem kann til verka vopnaður sogklukkum og klemmum.

Meint mikilvægi ljósmæðra helgast af tvennu. Geistleg yfirvöld sögðu algjörlega ómissandi að ljósmóðir sæti yfir sköpum joðsjúkra kvenna. Það voru auðvitað fyrst og fremst fyrirbyggjandi aðgerðir. Fóstur eiga það til að þrýstast á og trufla starfsemi kirtla svo rækilega að hin nýbakaða móðir er ekki fyrr kominn á fætur en hana fer að langa að stinga orminum í skafl eða örbylgjuofn. Ljósmæður voru ekki taldar meira ómissandi en svo að þær voru reknar af stað í hvaða mannskaðaveðri sem er til þess eins að koma í veg fyrir nýburamorð.

Hin ástæða þess að ljósmæður eru hafðar í miklum metum er afbakað Stokkhólmsheilkenni. Fæðingin er orðin eins ónáttúrulegur viðburður og framast er unnt að gera hana. Fyrir það fyrsta eru karlmenn viðstaddir fæðingar. Nokkuð sem er í algjörri andstöðu við eðlilegan gang hlutanna. Það vill ekkert karldýr sjá fæðingu. Til þess gerir náttúran konuna sífellt minna aðlaðandi sem nær dregur fæðingunni. Bjúgur, skapsveiflur og ofát (að ekki sé minnst á absúrd líkamsbyggingu) er leið náttúrunnar til að fæla burt karldýrin áður en hápunktur óþverrans, sjálf fæðingin, ríður í garð. Konur eiga að eiga einar á sama hátt og þær kúka einar. Óeðlið hefur gert fæðinguna að áhorfendasporti, þar sem karlarnir eru í hlutverki klappstýruambátta.

Saman sulla foreldrarnir nauðugir í lyfja- og efnaboðamóki á meðan konan tekur út þá refsingu guðs að skila melónu út um bakdyrnar fyrir eplið sem fór inn um framdyrnar. Kona vill vera í friði og karlinn vill fara heim og reykja vindil. Þau fá það ekki. Þau eru gíslar. Ljósmóðirinn er dyravörðurinn.

Nám ljósmæðra er of langt og of metnaðarfullt fyrir starfið sjálft. Ljósmóðir er gagnvart lækni það sem öryggisvörður frá Securitas er gagnvart löggunni. Báðir hópar eru of vel launaðir þegar tekið er mið af því að borgunin er raunar aðeins fyrir það að halda sér vakandi og hrópa á hjálp um leið og eitthvað fer úrskeiðis. Báðir hópar trúa því samt statt og stöðugt að þeir skipti máli.

Oj

Bloggið er orðið svo leiðinlegt að ég er komin á fremsta hlunn með að byrja að blogga aftur.

14. nóvember 2007

Feit og ljót börn

Við höfum óskaplega gaman af því, sem þjóð, að hafa áhyggjur af börnum. Sérstaklega finnst okkur gaman að trúa því að sjálfsmat og siðferðiskennd barna sé á hraðleið til helvítis.

Í kvöldfréttum Rúv var sagt frá þeim sláandi niðurstöðum að 21-23% barna í 6. og 7. bekk telja sig of þung. Þá kom í ljós að eitt barn af hverjum fimm átti í vandræðum með svefn upp á síðkastið og að tvö til fjögur börn í bekk telji sig „ekki flott“. Loks kom í ljós að drengjum er síður hrósað en stúlkum.

Fimmtungur barna er of þungur, foreldrar sumra barnanna hnoða þeim upp í rúm eldsnemma og þar liggja þau andvaka þar sem þau eru ekkert þreytt, færri börn en fimmtán í bekk eru „flott“ (þetta eru unglingar, þau líta út eins of fífl) og það er full ástæða til að hrósa stelpum frekar en drengjum.


Ekki er með skynsamlegu móti hægt að kalla börnin, sem
merkt eru með hring „flott“.

Smán hinna trúgjörnu

Jæja, Bastarðurinn er búinn að afneita mér einnig. Er ekki viss um Jón Örn og Hildi. En Bastarðurinn átti góða spretti. Ég verð að segja að virðing mín fyrir honum hefur vaxið. En nú er það búið. Að sið ÁBS tek ég því út síðustu færslu því hún er byggð á röngum upplýsingum.

„Ekki lýgur Mogginn“ hefur fengið nýja og dýpri merkingu. Það er synd að ÁBS og hjarðsveinn hans Eyvindur skyldu ekki sjá í gegnum þykka þvæluna í hinni meintu „opinberun“ minni vegna þess að hún birtist í Mogganum.

En það er dásamlegt að fylgjast með því hvernig hofmóðugt sært ljónið ÁBS reynir að verjast hinni óumflýjanlegu gagnsókn. Það dásamlegasta af þessu öllu er að það er öllum skítsama um þrætueplið. Hildi er alveg sama þótt ÁBS hafi hnoðast á sér einni og verið blindur fyrir sök allra annarra, þ.m.t. þeirrar, sem þetta skrifar. ÁBS er líka alveg sama þótt hann hafi hlaupið á sig. Ásgeiri er nákvæmlega sama um þetta allt, líka það að ÁBS og Hildur eru alltaf að rífast og að ÁBS hafi dregið lygina upp eftir mér. Það er öllum sama. En samt er slegist og drullukökum kastað úr hverju horni. Það er þykk (ég segi næstum kynferðisleg) spenna í loftinu milli ÁBS og Hildar (og Eyvindar jafnvel líka – þótt ég segi ekki í hvaða átt sú spenna beinist).

Það eina sem hefst úr þessu öllu er það að Dr. Gunna sárnaði fyrir hönd ÓS hve freklega var gengið framhjá honum í ritstjórninni og varði heiður hans sem gæðablóðið sem hann vafalaust er. Og það er rétt. Ég varð að skrá mannlega veru fyrir Ísnum hjá Stef. Aðeins ég, ÓS og Gunni vitum nákvæmlega hvert hlutverk ÓS er.

Hver veit kannski verður þetta opinberað að fullu seinna. En í bili mega þeir sem trúa því að Mengella sé ÓS trúa því. Þeir sem telja að Hildur sé hluti af Mengellu mega það. Þeir sem telja að Guttesen sé Mengella mega það. Þeir sem telja að Mengella sé ekki svo heimsk að fletta ofan af sjálfri sér fyrir Júróvisjón mega það. Þeir sem telja að ÓS viti meira um málið en hann lætur uppi hafa að öllum líkindum rétt fyrir sér.

13. nóvember 2007

Ögn um mengelsku

Það vakti furðu mína hve kumpánalegir Egill Helgason og ÁBS voru í Kiljunni um daginn, mér þóttu þeir heldur ólíklegir félagar. Að vísu báðir miðaldra menn með mikinn og einlægan áhuga á skoðanainnrætingu barna sinna. Báðir svolítið utangarðs í menningarheimi tröllriðnum af menntamönnum. En þar hélt ég að skildi sundur með þeim. Þar til ég sá þá í Kiljunni staðfesta hina snargáfuðu skoðun Wildes að kappsfullar samræður eru eina víman sem vit er í.


Mér þykir því óendanlega einkennilegt núna að sjá Egil enduróma svotil allan grunninn í skoðunum ÁBS á sjálfri mér. Og aftur þetta raus um að það sé afrek að láta banna sig frá Barnalandi – eins og eina mögulega ástæða þess að hægt væri að lenda í banni þar væri sú að vera enn slakari skítakarakter en flestir þeir sem vaða þar uppi. Það vill nú svo til að langflestir árekstrar mínir við Barnalandskonur voru vegna þess að ég rakst á horn þeirra skítsála sem þar krauma inn á milli og Barnaland er rekið eftir uppskrift úr Flugnahöfðingjanum. Það getur hver sem er „kært“ hvern sem er og ef það gerist nógu oft fer maður í bann. Ég verð að segja að ég er töluvert upp með mér af ævilanga banninu á BL.

En nóg um það.

Egill segir svosem ekkert um mig. Gefur svona létt í skyn að ég sé geðsjúklingur vegna ummæla minna um menn í skjóli nafnleyndar. Nú ætla ég ekki að dæma um eigið geðheilbrigði en það er frekar reynsla mín eftir nokkuð gaumgæfilega athugun á íslenskum netheimum að geðveika fólkið er yfirleitt fyrst til að koma fram undi nafni. Og það er enginn skortur á því. Ég nenni ekki út í enn eina umræðuna um nafnleynd en ætla að ræða oggupons um mengelsku.


Það er nokkuð ljóst að skrif mín hafa vakið einhverja athygli. Mér skilst að Mogginn hafi hlaupið á sig (og dregið ÁBS með sér) og birt smáfrétt um opinberun mína. Sem er fáheyrt. Ég reyndi að ljá opinberuninni slíkan farsasvip með tuði um leðurklædd svipukvendi að það væri ekki hægt, sæmilega greindu fólki, að trúa henni. Þá setti ég inn nöfn tveggja einstaklinga sem ég þóttist vita að myndu afneita þessu strax og þannig myndi spilaborg Hildar, Jóns og Bastarðsins falla um sjálfa sig. Ekkert af þessum þremenningum hefur nokkuð með það að gera hvaða nöfn ég valdi í þessi tvö auðu sæti. Fullyrðingar ÁBS um annað sanna enn einu sinni það sem ég hef áður sagt en hann ekki hlustað á. Hann er ekki nógu vandvirkur miðað við hvað hann er illa læs. Það er pínlegt fyrir ÁBS að lenda ítrekað í því að stökkva af stað með eigin túlkun á hinu og þessu sem ekki stenst skoðun.

ÁBS telur að auki fáránlegt að líkja saman skrifum mínum um viðkvæm efni og hans. Munurinn felst, að því er virðist, í nefnaranum sem sameinaði þessar tvær týndu og ómenntuðu sálir ÁBS og EH, þ.e. kilju. Það er engin kilja hornrétt á minn texta og þar af leiðir að ég má ekki skrifa eins og hann. Þetta er rugl. Tímavilla.

Bókmenntir í dag þurfa enga kilju – hvort sem hún er með litlu eða stóru kái. ÁBS og EH eru báðir steyptir fastir í gangstéttina þar sem þeir námu staðar í sínum bókmenntalega þroska. Fyrir framan útstillingarglugga á gamaldags bókabúð. Það eru til góðar og vondar bækur og það eru til vel og illa skrifaðar bækur. Þetta er tvennt ólíkt. Hið sama á við um persónur. Áðurfyrr höfðu höfundar frá tveimur og upp í hundrað klukkutíma til að hafa þau áhrif á lesandann sem þeir óskuðu. Það fór einfaldlega eftir því hve hraðlæs lesandinn var (í tilfelli fyrrum rektorsins á Bifröst voru þetta um tuttugu mínútur). Á þessu tímabili varð höfundurinn að koma öllu því efni sem persónur hans áttu að mótast úr.

Annað hvort er Mengella uppdiktuð persóna sem lifir sjálfstæðu lífi og það er þá hlutverk höfundar að halda henni lifandi svo lengi sem hann telur sig eiga eitthvað ógert eða að hann telji t.d. að hann hafi tækifæri til að draga fleiri aukapersónur inn í „bókina“ eða Mengella er gríma sem höfundur felur sig á bak við til að geta orðað skoðanir sem hann/hún þorir ekki eða getur ekki staðið við sjálf/-ur.

Ég hef þegar sagt hvort heldur er.

En ef skoðanir Mengellu eru þannig að henni beri útskúfun og fordæming eins og EH virðist vilja meina þá er eðlilegt að hluti þeirra sem vita betur hafi svo útþanda velsæmistilfinningu að þeir telji hunsun eina sæmilega svarið. En það er þá einnig eðlileg krafa að einhverir þeirra sem telji sig vita betur bendi á veilurnar í málflutningnum.

Það er fjandakornið komið heldur illa fyrir okkur ef skoðanir okkar eru hafðar yfir rök og skoðanir annarra hafðar undir rök. Hverskonar skoðanir sitjum við þá uppi með? Hverskonar umræðu fóstrum við við slíkar aðstæður?

Jú, við sitjum uppi með grútmáttlausa umræðu þar sem hver þátttakandi galar ofan af sínum hól, engir tveir eru að tala um það sama og eina samhverfan sem búast má við er þegar einstaka mál er þannig vaxið að enginn þorir að hafa nema eina skoðun á því. [Líkindi í þessari málsgrein við Silfur Egils eru tilkomin af tilviljun].

Hættið þessari helvítis skinhelgi. Þið klæðið ykkur í pelsa og dillið ykkur í takt við Megas (sem syngur glaðhlakkalegur um barnanauðganir), þið hjúfrið ykkur undir sæng og lesið bækur um hættulega menn og horfið á hroðalegar myndir. En svo hamist þið við að gljáfægja veruleikann sem þið búið í með endalausum kurteisisseremóníum og samskiptareglum. Trúarsetning ykkar er: aðeins snillingar mega gára vatnið okkar. Og þess vegna er ykkur bumbult mín vegna. Þið eruð ekki vissir um hvort ég er snillingur. Hvort ég sé gjörningur einhvers kumpána ykkar og þið bara svo vitlausir að fatta ekki djókinn. Þannig að þið tautið fyrir munni ykkar skammaryrði en gætið þess að krydda ögn með lofi.

Það mega fleiri en snillingar gára vatnið. Það má yrkja ljóð um blautar píkur og birta í mogganum, það má pissa upp í sig í kastljósinu, það má hafa skoðun á því hvað megi. Og, það sem mikilvægast er, það má tjá sig eftir leiðum sem eru aðrar en þær sem þið eruð vanir. Þið eruð ekkert nema stofustelpur hefðarinnar, úrkynjaða franska hirðin. Öll ykkar uppreisn er plaggat upp á vegg, ykkar byltingarleiðtogar hafa gigt og þvagleka.

Þið eruð staðnaðir.

Og blöndungurinn kom fljúgandi inn um stofugluggann...

Áður en haninn galaði tvisvar var Þórdís búin að afneita mér þrisvar og Ásgeir tvisvar.

Ég get ekki sagt að það komi mér stórkostlega á óvart. Til þess var leikurinn gerður.

Staðan er sumsé sú að ég tók eftir því að Hildur, Þórarinn og Jón Örn voru tekin upp á því að þykjast vera ég í einhverju innanbúðarsprikli sín á milli og kunngera það heiminum. Og fyrst þau voru svona áfjáð í að vera ég þá ákvað ég að spila með. Ég bætti við tveimur sakleysingjum úr kunningjahóp þeirra og gaf þeim allan heiðurinn, vonandi það að gamanið myndi kárna. Sem það og gerði.

Lætin útaf þessu voru stórkostlega furðuleg. Það er merkilegt hve mörgum þetta er hjartans mál. Hápunktarnir voru þó þeir þegar Skúli Steinn rak sitt stóra nef inn á þessa síðu og mælti ögrandi með dillandi tóni: „Muniði eftir mér?“ eða eitthvað álíka gáfulegt. Ljóta fíflið sá drengur. ÁBS var stórkostlegur í hlutverki hins umvöndunarsama föður sem taldi sig eiga ýmislegt ósagt við skáldin í hópnum og vildi vita hvað útgefendur þeirra og vinnuveitendur myndu segja um málið. Hvað með það þótt þó væru ég? Er munur á því að glensa með Breiðavík og því að nota skriftir til að fá útrás fyrir eigin miðaldra fantasíur um vændiskaup? Eyvindur kom með svipaða línu, enda hefur hann sótt einkennilega fróun í það að vera kjölturakki ÁBS síðan hann fékk löggildingu sem rithöfundur.

Nú mæli ég með að þeir, sem áhuga hafa á því, lesi bloggið og aðrir láti það einfaldlega vera. Það má vel vera að ég opinberi mig einhvertímann seinna. En það verður ekki nándanærri strax.

12. nóvember 2007

Ruddar bæra á sér

Dagurinn hefur verið viðburðaríkur hjá ritstjórninni. Það sem gleður mest er að hnakkrotturnar í Ruddunum hafa vaknað til lífsins. Þar byrjar eitt smurolíukámað gáfnaljósið á að gaspra:

kannski að veturinn verði ekki alveg aðgerðalaus after all...

fávitapakkið bakvið Mengellu skrípið er búið að ljóstra því upp hverjir standa bakvið skrif Mengellu.

Þessir ljóðarúnkarar hafa drullað rækilega yfir bifhjólafólk í gegnum tíðina, og alveg spurning hvort við gerum nú ekki það sama við þau í vetur?
Og nokkru seinna kemur hjá öðrum sem á álíka illa loftræstan hjálm:

Kæmi mér ekkert á óvart ef einhver, eða allir, á þessum lista lendi í einhverju veseni
Okkar svar: Bring it on! Haldiði virkilega að við séum hrædd við ykkur, leðurbrakandi rúllupylsurnar ykkar? Þið hafið hvorki nógu mikinn samtakamátt né skipulagshæfileika til að mynda þriggja manna hóp. Haldið þið að eitthvert okkar óttist það að líta út um gluggann í kvöld og sjá nokkur sniglarídjekt hangandi undir ljósastaur, reykjandi filterslausan kamel við hlið hommalegra hjóla? Komið bara. Sýnið hvað þið getið. Við skorum á ykkur.

Kjaftbrúkandi aumingjar.

11. nóvember 2007

Og þá er það opinbert

Æviferill Mengellu hefur verið kostulegur á ýmsan hátt. Hún fæddist í koddahjali tveggja barnalandskvenna. Hildur Lilliendahl var önnur og var á þeim tíma að jafna sig á erfiðum sambandsslitum, m.a. með þreifingum á sínu eigin kyni. Eftir velheppnaðan kynlífshlutverkaleik þar sem Hildur var í hlutverki Mengellu (sem var leðurkvendi mikið) kom upp hugmyndin um að vekja karakterinn til lífsins utan svefnherbergisins. Hún steig fram á sjónarsviðið á BL og ávann sér hægt og rólega sess sem mikið og óvægið meinhorn. Helstu áhugamál hennar voru útúrsnúningar, gæludýradráp og athugasemdir um stíl og málfar.

Smám saman vaknaði löngunin til að glæða gelluna meiri raunveruleika. Og eitt sumblandi kvöld á öldurhúsi var stofnuð ritstjórn um Mengellu, áætlunin var sú að Hildur léti reka Mengellu af Barnalandi og hún myndi byrja að blogga í kjölfarið. Þórarinn Björn var tekinn inn í hópinn og ónefnda Barnalandskonan datt út fyrir fullt og allt enda hafði kárnað gamanið á milli hennar og Hildar. Þá fékk Hildur Jón Örn með í kompaníið auk tveggja annarra.

The rest is history.

Nú er ritstjórn Mengellu opinberuð í heild sinni í fyrsta skipti.

1. Hildur Lilliendahl
2. Jón Örn Loðmfjörð
3. Ásgeir H. Ingólfsson
4. Þórarinn Björn Sigurjónsson
5. Þórdís Björnsdóttir

Við þökkum fyrir okkur!

8. nóvember 2007

Hægdrepandi hugmyndafræði


Enn á ný gerist það. Ungur maður gegnsýrður af minnimáttarkennd plammar á samborgara sína og skýtur sig svo í hausinn. Og enn á ný er uppgefna skýringin róttæk hugmyndafræði.

Atburðir eins og þessi eru aldrei einfaldir og það er ekki hægt að benda á eina tiltekna skýringu. Það eru alltaf margir samverkandi þættir. En, við sjáum þó rauðan þráð liggja í gegnum Columbine - VT - og nú finnska skólann, sem kveikir vissar vangaveltur.

Allir morðingjarnir töldu sig vera fórnarlömb hugsanakúgunar samfélagsins. Og þeir töldu allir ennfremur að þeir hefðu séð í gegnum gljáfægt yfirborð leyfilegrar hugmyndafræði. Og það er ekki síst þess vegna – sem þeim tókst smám saman að einangra sig svo rækilega frá samfélaginu að dýrðlegt fjöldasjálfsmorð varð niðurstaðan.

Ég fullyrði að hægt hefði verið að afstýra þessum fjöldamorðum að hluta eða í heild með því að ástunda ábyrgt hugsanafrelsi. Þá hefðu Cho, Dylan og Klebold og nú þessi finnski aldrei náð að malla nógu lengi í réttlætingarsúpu ódæðisverkanna.

Þeir voru í raun allir sammála um grundvallaratriðin.

Þeir voru allir undirmálsmenn með mikilmennskubrjálæði. Útrás þeirra fólst í því að líta niður á samfélagið sem þeir tilheyrðu og sérstaklega þá þætti þess sem höfðu völd yfir þeim sjálfum (skólar). Aftur og aftur endurtóku þeir í sífellu í eigin eyru og skoðanabræðra á netinu að samfélagið væri hugsað fyrir aumingja, hannað fyrir veiklulegt mannkyn. Þar sem þeir voru allir utangátta í samfélaginu og þeim gekk ekki með hefðbundum aðferðum að aðlagast (tóku t.a.m. geðlyf) þá er eina skýringin sem sjálfsvirðingunni er samboðin sú að þeir séu af öðru sauðahúsi. Þ.e. að mistök þeirra við að aðlagast eru ekki vegna eigin vangetu heldur vegna þess að það sem verið er að reyna að gera úr þeim er veiklað og ómanneskjulegt. Það er verið að reyna að þvinga þá til að verða ómenni – aumar hjarðsálir. Og hægt og rólega verða þeir andfélagslegri og fjandsamlegri og hafa minni og minni áhuga á að meika það í samfélaginu. Samfélagið er ekki þess virði.

Og þeir fantasera um samfélag þar sem fólk fær að vera eins og þeir, skrítið, aggresívt og sjálfstætt. Og smám saman flýtur upp á yfirborðið sama hugmyndin. Hinir sterku þora! Þeir þora að fylgja lögmálum náttúrunnar, beita styrk sínum og engin leið er betri til að uppfylla þá fantasíu en að ganga yfir strikið – sýna fram á veikleika hjarðeðlisins – eyðileggja leikaraskapinn. Rífa samborgarana úr þessum steingeldu hlutverkum eitt augnablik og gera þá að dýrum með sterka sjálfsbjargarviðleitni. Kenna lexíu. Enginn sem verður á vegi byssumanns mun geta haldið lífi sínu áfram í sömu þægilegu vissu um öryggi leikreglnanna.

Og satt að segja er þetta dálítið sniðug pæling hjá þeim. Og þetta eru vel gefnir menn að ýmsu leyti. Ögn hégómlegir, sem sést best á því hve umhugað þeim er um að eftirlifendur túlki þá „rétt“. Að fólk haldi ekki að þeir séu bara a hlýða textum í einhverju lagi eða herma eftir tölvuleik. Það er miklu meiri pæling í þessu en svo.

Hitt er annað mál að pælingar þeirra leiða þá á algjörar villigötur. Þeir eru ekki ofurhreinskilnir fangar sem brjóta af sér hlekkina. Öll þeirra skynsemi er þræll vanmáttarkenndar vegna þess að þeir eru mislukkaðir einstaklingar. Og þeir hafa aldrei fengið að takast á við þessar pælingar því þær eru bannaðar. Ef þeir svo mikið sem hafa orð á því sem þeir eru að hugsa eru þeir sendir til sálfræðings sem gerir ekkert annað en að staðfesta vanmáttarkennd þeirra og reyna að móta þá enn á ný.

Það er ekkert hugsanafrelsi til. Það vill enginn ræða þessi mál í kjölinn. Svona fólki er bara skipað að þegja eða því refsað ef upp um það kemst. Og meðan engin rödd kemur fram með mótrökin verður sífellt auðveldara að týnast í myrkri eigin raka.

Finnski morðinginn var svona tíu sinnum gáfaðri en fíflin á bakvið Skaparann. Fyrir þeim er þetta leikur. Fyrir honum dauðans alvara. Þeir hafa meiru að tapa. Hann hafði engu að tapa. Þeir telja sig hafa á réttu að standa. Hann hafði þrauthugsað málið til enda.

En allir höfðu á endanum jafnrangt fyrir sér. Og allir létu glepjast af lélegum rökum. En enginn tók við þá slaginn. Enda ekki von. Í samfélagi sem vill ekki sjá tíu litla negrastráka er ekki líklegt að við séum tilbúin að rökræða við þá sem hafa enn róttækari skoðanir. Samt er rökræðan hugsanlega eitt af því fáa sem getur unnið hluta af þessu fólki til baka. Því enginn gerir svona nema hann telji að það að mestu sé hræsnislaust.

7. nóvember 2007

Vi er hvide...

Monty Python afgreiddi flón eins og Vigfússyni og aðra rasista af þeirra sauðahúsi fyrir margt löngu. Af hverju er ekki hægt að kokka upp gáfaða rasista? Það gæti verið fjör. Síðasti gáfaði rasistinn var Göbbels.


6. nóvember 2007

Tíu kátir kynvillingar


Hvort sem kynvilla er meðfædd eða ekki þá er hressandi að ljúka hinni löngu orðræðu um hvað má og hvað má ekki í barnabókmenntum með laginu Tíu kátir kynvillingar, hvers uppruni er öllum sæmilega vel gefnum einstaklingum ljós.









Kynvillingar fóru á krá,
kenndir, allir tíu
einn var tekinn aftanfrá,
og eftir voru níu.

Níu litlir nárakjassar
nutu þess að hátta
einn fékk skæða sárasótt
þá sátu eftir átta.

Átta hýrir hommatittir
hittust klukkan tvö
einn tók fullstórt upp í sig
eftir voru sjö.

Sjö graðir gleðipinnar
gláptu á XXX
einn þeirra sprakk úr spenningi
spólunni skiluðu sex.

Sex blíðir attaníossar
æfðu sig í rimm
einn fékk sig fullsaddan
sáttir voru fimm.

Fimm æstir analistar
urðu flennistórir
einn féll þá í yfirlið
eftir voru fjórir.

Fjórir sætir sykurpúðar
sungu „ég er hýr“
einn var kýldur klessu í
komust undan þrír.

Þrem bústnum bossahossum
bauðst að hnoða leir
einn fékk af því standpínu
eftir sátu tveir.

Tveir baldnir borusnúðar
bögguðu ekki neinn
en öðrum var gert að gifta sig
gekk þá áfram einn.

Einn kenghýr kynvillingur
komst víst aldrei heim
en ekki hafa áhyggjur
það er víst nóg af þeim.

4. nóvember 2007

Fjölskyldan gleðst með Golly



Nú geta allir sýnt blámönnum samstöðu, þökk sé nýjustu afurð Nýlenduvöruverzlunarinnar.

Ritskoðun og rasismi tvö

Það var nóg að gera hjá lesendum þessarar síðu í nótt. Tvennt stendur uppúr. Í fyrsta lagi var staðfestur grunur minn um að helstu andstæðingar negrastrákanna væru illa gefið þý í samtökum hinna blæðandi hjarta, lið sem er litblint á róf raka og gildismats. Hinsvegar kom Eyvindur Karlsson með athugasemd sem kallar fram það efni sem síðasta færsla mín hlýtur að krefjast svara við. Ég hafði hugsað mér að bæta því við í gær en hætti lengdarinnar vegna og vegna þess að það gæti truflað ringlaðri lesendur mína sem rista frekar grunnt þegar þeir leggja á ála hugsunarinnar.

Nema hvað. Einhver þokuheili ruddist fram og taldi nú hreinlega að ég væri að rugla þegar ég segði að Muggur og co hefðu ljáð negrastrákunum íslenskt, sveitarlegt yfirbragð. Þvert á móti væri um að ræða bersýnilegt innlegg í alþjóðarasisma og þyrfti ekki annað en að skoða hollenska bók um sama efni til að sjá að íslenska og niðurlenska bókin væru „nákvæmlega eins“. Þá kom einhver langhundur um að ég væri í fararbroddi einhverrar klíku og á hæla mér kæmu Egill Helgason og æi, hún þarna með hundsfésið, Kolbrún (sem raunar kom vel fyrir í síðustu Kilju sem var stórskemmtilegur þáttur, ekki síst þegar Egill runkaði egói ÁBS svo eftirminnilega að sá síðarnefndi gat ekki annað en roðnað og brosað hringinn – en það er önnur ella). Grautarheilinn klykkti svo út með að ég ætti ekki að vera að nefna Þórberg á nafn því hann hafi verið á móti rasisma og ég hefði áreiðanlega fordæmt hann og skoðanir hans ef við hefðum andað að okkur sama Reykjavíkurloftinu.

Tökum þetta í öfugri röð.

Já, ég hefði haft ýmislegt út á Þórberg að setja. Þó fyrst og fremst kinnroðalausa pólitíska innrætingu hans gagnvart börnum (að kenna Lillu Heggu að elska Stalín fimm ára gamalli er í hæsta máta siðlaust og snertir punkt Eyvindar sem ég sný mér að á eftir), en ég hefði vafalaust haft næga greind þá, eins og nú til að sjá að maðurinn var snillingur og vel þess virði að lesa þótt skoðanir hans í mörgum málum væru rangar og sumar hreint og beint heimskulegar. Og kannski ástæða til að lesa hann ekki síður vegna þessara lélegu skoðana. Nafnlausi moðhausinn gefur í skyn að það felist í því hræsni eða mótsögn að fárast yfir því að maður sé dæmdur fyrir skoðanir sínar sé maður ekki skoðanabróðir hans að öllu leyti. Hálfvitaskapur.

Það að ég kalli ritskoðunaræðið sem negradeilan er til marks um vinstrisinnaða byggir á augljósum samfélagslegum sannindum. Það eru ekki lengur borgaralegir hægrimenn í skátabúningum sem taka sér stöðu sem samviska heimsins. Það er vinstraliðið. Liðið sem þykist vera að lagfæra samfélag okkar og skafa af því óværu sem fyrst og fremst opinberast í „röngum skoðunum“. Það þarf ekkert að rökræða um þetta. Það neyðarlega er að sama fólkið, sumt af því a.m.k. hefur hingaðtil varið málfrelsið og gert útáþað að sjokkera, stuða og traðka á almennu velsæmi. Það er vegna ofureðlis negranærgætni sem málfrelsinu var óvart kastað fyrir róða og nú vita sumir ekki hvernig á að endurheimta það án þess að tapa andlitinu.

Hollenska negrabókin er mér vel kunn, ég var búin að skoða hana og þá þýsku raunar líka. Og þótt sú Hollenska sé yngri en sú íslenska þá er ofur augljós og einföld ástæða fyrir því hve líkar þær eru. Það geta allir séð með smá gúglun. Hitt er annað mál að báðar þessar bækur bera þess skýrt merki að vera ekki frá upprunalandi útgáfunnar. Reynsla Ameríkana af negrum var allt önnur en Íslendinga. Og þegar bókin kom út á íslensku var hún ekki að endurspegla rasistaskoðanir höfundanna eða þjóðarinnar á negrum. Þvert á móti er íslenska útgáfan full af heimfæringum á íslenska samfélagið, bæði í myndum og máli. Svo mjög að þegar hún kemur út gæti textinn allteins verið við einhvern sjómannavals.

Það er ekkert við örlög negrana sem endurspeglar fordóma Íslendinga gagnvart negrum. Hefði það verið hugmyndin hefði einn étið illa soðinn trúboða og fengið í magann, annar hefði séð sjálfan sig í spegli og misst vitið af hræðslu, þriðji hefði sett bein í nefið á sér og fengið sýkingu, fjórði hefði verið laminn af Tarzan, fimmti hefði óvart þurrkað og smækkað hausinn á sjálfum sér o.s.frv.

Íslendingar höfðu fullt af rasískum hugmyndum um negra á þeim tíma sem bókin kom út. Og þær hugmyndir voru alltaðrar en hugmyndir um ameríska leysingjasyni. Bókin er um þá og því um borgaralega negra. Í stað þess að heimfæra textann upp á hugmyndir þjóðarinnar um negra og gera hana framandi og hræðilega kusu höfundar að nota íslenskan veruleika. Og bókin úir og grúir af slíkum dæmum og allsstaðar þar sem íslenska og hollenska útgáfan eru ósamstíga er það vegna þess að sú íslenska er íslenskari.

Eyvindur kom með punkt gegn algjöru ritskoðunarleysi. Að vísu fyrirsjáanlegan punkt og einfaldan en málefnalegan engu að síður. Miðað við það sem ég sagði, væri ég þá til í að börn hefðu aðgang að myndum eins og Hostel?

Svarið er auðvitað nei. Og ég get haldið því fram hræsnislaust. Aftur er lykilorðið velsæmi.

Velsæmi er ekki það sama og almannahagur þótt það fyrrnefnda geti verið hluti af því síðarnefnda. Og ég hef þegar sagt að setja þurfi tjáningunni mörk með vísan til almannahags. Þannig geta morð og barnamisnotkun aldrei verið réttlætanlegur listrænn tilgangur. Það kemur velsæmi ekkert við. Velsæmi er spurning um smekk. Það hvort nauðga megi börnum og selja aðgang er ekki spurning um smekk. Það hvort sýna megi börnum klámmyndir eða hrollvekjur er ekki heldur spurning um smekk.

Segjum sem svo að lögregla bannaði fund nasista á efstu hæð byggingar sem væri svoleiðis í móðu vegna asbestryks. Slíkt bann hefði ekkert að gera með fundafrelsi. Og þegar við bönnum aðgengi barna að klámi kemur það engu tjáningarfrelsi við. Það er bannað því það telst með góðu móti börnum afar skaðlegt. Á sama hátt mætti banna listamanni að stunda þann gjörning að stökkva öskrandi út úr fataskápum hjartveikra ellilífeyrisþega. Slíkt bann kemur tjáningarfrelsi ekki við enda snýst deilan um réttmæti þess ekki um það hvað tjáningarfrelsi leyfi heldur eingöngu um skaðann sem af því getur hlotist.

Negrastrákadeilan snýst eingöngu um velsæmi. Það heldur því enginn fram að bókin sé sjálfkrafa skaðleg. Því er aðeins haldið fram að hún sé óviðeigandi, smekklaus og særandi. Hún veldur engum augljósum skaða.

Sagan er full af dæmum þar sem velsæmið tekst á við tjáningarfrelsið. Og rökin eru alltaf þau sömu, það breytast aðeins hlutirnir sem á að ritskoða, fela, merkja eða banna.

Alveg óvart erum við að verða að amerískum aumingjum.



Mæli með að fólk horfi á nákvæmlega sömu deilu í örlítið öðrum búningi, þar sem Frank Zappa stóð í eldlínunni gegn fólki sem fullyrti að eitís-tónlist væri skaðleg börnum og hana ætti að sérmerkja svo foreldrum reyndist auðveldara að vernda börn sín fyrir henni.






3. nóvember 2007

Ritskoðun

Það felst hreintútsagt ótrúleg einfeldni í því að segja að ritskoðun felist í því einu hvort eitthvað sé bannað. Það er kannski orðið sem er villandi. Ritskoðun er miklu víðtækari en svo. Það er t.d. ritskoðun að setja aðvörunarmiða á vörur, t.d. um blót, nekt eða æskilegan aldur neytenda. Það er ekki minni ritskoðun að færa bók úr barnadeildinni í hina væntanlega agnarsmáu deild pólitískra áróðursrita. Nú eða bara stilla barnabók þannig upp í barnadeildinni að börn geti ekki með neinu eðlilegu móti séð þær (eins og Eymundsson í Austurstræti hefur gert við Negrastrákana). Það er líka ritskoðun að krefjast þess að tilteknar bækur séu ekki lesnar (eða sungnar) í tilteknum leikskólum. Ritskoðun er svo miklu meira en bara bann við útgáfu.

Deilan um 10 litla negrastráka er fyrst og fremst deila um ritskoðun. Framanaf voru háværar raddir sem heimtuðu allrahanda ritskoðun. Það átti að banna lestur á bókinni, söng á vísunum eða færa bókina til. Það var svosem enginn (með viti) sem vildi banna útgáfuna en óskin um ritskoðun var rótsterk fyrir því. Og er enn.

Vinstri sinnaðir og ungæðingslegir menningarbesservisserar hlupu á sig. Og eru búnir að fatta það, a.m.k. sumir. Menn féllu í þá gildru að koma fram við aldraða bók eins og aldraða manneskju, þ.e. af næstum takmarkalausri lítilsvirðingu. Af því að bókin var gömul mátti lemja á henni með nútímalegum gildismatskylfum. Hæðast að henni og lítilsvirða hugmyndir hennar. Meðan raunin er sú að ef verið væri að gefa tíu litla negrastráka út í fyrsta sinn núna væri hún líklega nógu framandi til að teljast stingandi, ljóðræn snilld og sama liðið og núna fordæmir hana myndi slá um hana skjaldborg. Ástæða þess að fólk (þ.e. læsar vitsmunaverur, ekki heimskir blendingsverndarar) ræðst heiftúðlega að bókinni er sú að í sinni þeirra tekur bókin sig alvarlega. Ef hún væri framsett sem ísmeygilegt háð væri hún varin og virt.

Málið er að bókin er hvorugt. Hún er hálfkæringsleg og óalvarleg barnabók og það eina ljóta sem negrum er gert í henni er að láta þá spila rullu íslenskra bænda (einn þóttist stór og fékk á hann, annar drakk sig undir borðin, þriðji át á sig gat, fjórði var stangaður af belju). Það var öll syndin. Hinn hroðalegi rasíski undirtónn vísunnar var sá að við líktum negrunum við okkur sjálf.

Það er ekki langt síðan ungskáld íslensk pönkuðust í geðveikum íslenskukennara vegna þess að henni þótti einn vinur þeirra vera lélegt skáld og í raun ekkert annað en pínulítill naggur að gera sig stóran með klámkjafti (sem ég held að sé ekki útilokað), það er aðeins lengra síðan maður pissaði upp (niður) í sjálfan sig í sunnudagskastljósinu, töluvert lengra er síðan Zappa þurfti að takast á við hálfan heiminn vegna þess að textarnir hans voru svo dónalegir og lengst er síðan Þórbergur var dæmdur fyrir að lítilsvirða hið mikla menningarríki þýskra nasista.

Ritskoðun er kjánaleg og óþörf. Það á ekki að ráðast á bókmenntir (eða nokkuð annað ef því er að skipta) með velsæmið að vopni. Velsæmið sér um sig sjálft. Það þarf ekki vitiborna talsmenn í viðbót við þá vitlausu.