13. desember 2008

Jólalagið í ár...

...Er Santa Claus Will Take You to Hell, og er með kirkjukór Westborough Babtist Church (God Hates Fags!).

Það var kominn tími til að einhverjir stæðu uppi í skegginu á Sveinka.

Ég læt hér fljóta með þýddan og staðfærðan texta lagsins á hlandvolga, ásthýra. Það heitir Jólasveinn þér kemur í hel.



Jólasveinn þér kemur í hel

Já, farðu með gát, gættu að þér.
Hér er dimm hola, þú skalt fela þig hér,
því jólasveinn þér kemur í hel.

Þú dýrkar hann og dáir, þú stígur við hann dans.
Á dómsdegi það dugar ei – þú ferð beint til andskotans.

Já, áttaðu þig og hlustaðu' á mig.
Það var helvítið hann Jóli sem reið krónunni' á slig.
Jólasveinn þér kemur í hel.

Aldrei hjá honum skildu' eftir börn,
hann flettir þau klæðum og tekur í görn.
Jólasveinn þér kemur í hel.

Er barnið spyrt hvort sé hann til,
þú lýgur roðalaust.
Þín syndum troðna sálarpísl,
lýgur vetur, vor og haust.

Já, áttaðu þig – þú ert nix, þú er núll,
Það var bévítans Jóli sem drap Rúnna Júll.
Jólasveinn þér kemur í hel.


Hér má sjá myndbandið (á ensku). Íslenska þýðingin er almenningseign. Gerið svo vel að gera ykkar eigin LiveAid-útgáfur.

Engin ummæli: