3. mars 2007

Ég er ekki þú, ég er annar.

Ég á mér þráhygginn umsátursmann. Sá fer um netið og skrifar (heldur lélegar hingað til) athugasemdir í mínu nafni. Ég hef fylgst með ódámnum taka lítil, en markviss, framfaraskref í ásetningi sínum. Er svo komið að hann hefur náð að læra nógu mikið á bloggerkerfið til að erfitt sé fyrir fólk að greina á milli mín og hans (nema auðvitað á innihaldinu).

Ég óska honum heilla.

Og talandi um hænuskref til framfara. Eyvindur Karlsson hefur gert samning um útgáfu Ósagðs.

Ég óska honum líka heilla.

Þá hnuplaði ég eldgamalli hugmynd (sem ég held þó að aldrei hafi verið framkvæmd í raun) að barnasmekk og dembdi inn í Nýlenduvöruverzlunina. Aðallega til að geta pantað slíkan sjálf til gjafar.

Þótt ótrúlegt sé, hafa selst nokkrir Breiðavíkurbolir. Það er greinilegt að pönkið lifir í einhverjum.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ljóst er að Glæpaskáldið liggur undir grun.

Nafnlaus sagði...

Það vantar r í framfararskref, helvítis sálfærðisaðjúnktinn þinn. Ertu góður í Photoshop?

Þetta er hótun.

Lærðu að Photoshoppa. Kunntu að gelda málið. Nei já þú kannt það.

Nafnlaus sagði...

Ég óska honum líka heilla.