6. mars 2007

Rugludallur

Eftir því sem lengri tími líður verð ég vissari um að ofsafengin umræða um klám og feminisma og allt það kjaftæði er samfélaginu holl. Það er gott að menn nenna að takast á um grundvallargildi. Þeir sem vilja stoppa umræðuna af því að hún sé gamlar fréttir eru yfirborðskennd fífl sem komin eru með leið á því að hugsa (ef þau hafa byrjað á því á annað borð).

Þó stendur umræðunni fyrir þrifum hve margt illa gefið fólk tekur þátt í henni. Dæmi um slíkt er Sóley Tómasdóttir. Sóley er hégómagjarn kjáni. Ekki aðeins verður henni það á, að gera þá sorglegu hugarvillu að mótmæli fólks við hennar hugskynjunum stafi af því að hugmyndir hennar séu ofvaxnar skilningi þess, heldur brennir hún allar brýr sem hún fer yfir að baki sér í andlegu undanhaldi.

Hugmyndafræði Sóleyjar er líkari spakmælabók en fræðilegri ritgerð. Hún áttar sig engan veginn á því. Hún heldur að órjúfanleg tengsl kláms við ofbeldi og mansal séu vísindaleg staðreynd. Þegar einhver mótmælir kemur í hana þykkja. Hún klæðir sig í háskólabolinn og segir: „Ekki myndirðu biðja veðurfræðing að rökstyðja af hverju hæð er yfir Grænlandi. Drullaðu þér bara í kynjafræði ef þú vilt skilja, fíflið þitt.“

Þegar hún brýtur odd af oflæti sínu og ávarpar múginn er alþýðlega skýringin á þessa leið: „Konur sem leika í klámi hafa brotna sjálfsmynd og erfiðleikarnir leiða þær í klámið.“

Sem er merkilegt, því það vill nú svo til að nákvæmlega sama kvengerðin, sú kúgaða, einstæða með brotnu sjálfsmyndina, er undirstaðan í nemendahópi kynjafræðinnar og hefur alltaf verið. Með sömu rökum er því kynjafræðin sama kúgunartækið og klámið.

„Konur í kynjafræði hafa brotna sjálfsmynd og erfiðleikarnir leiða þær í námið.“

19 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta er svona týpískt séríslenskt fyrirbrigði, eiginlega lókalt með nokkrar fjölmiðlaglaðar Tómasínur.

Nafnlaus sagði...

já þetta umræðuefni gerir það stundum að verkum,að ég sé mig tilneyddan til þess að rölta inní eldhús og sjóða nokkur egg!!!

Vissulega er það til í heimi klámsins að konur eru beittar ofbeldi,og mansal er stundað víða,það vitum við. En stundum er eins og það séu einu rökin fyrir því að það eigi að banna klám!! Af því að það er til fólk sem brýtur af sér til þess að græða í þessum iðnaði..væri þá ekki bara allt í lagi að banna sjoppur af því að það er til fólk sem leitast við að svíkja undan skatti í tengslum við þær...eða bara eitthvað enn fáránlegra...banna banka,af því að það er hægt að ræna þá!!!
Nú ætlar Gústi að vera stóryrtur og fullyrðir að allar þær kellingadruslur sem tala gegn klámi,hafi bara ekki séð nægilega góða klámmynd:) Þær skammast sín,af því að það er til fólk sem er öruggara með sig í kynlífinu en þær :) Í sumum tilfellum er þetta bara skortur á góðum drætti...og þeir karlmenn sem taka undir þessa vitleysu..tja...þeir eru bara lygarar!! Þykjast vera sammála,í þeirri von um að fá að sænga hjá þeim!! Það fíla allir karlmenn Porn...:)

Kv,Gústi Svangi "pornódog"

Nafnlaus sagði...

það þarf allavega klárlega að banna nike skó, enda stuðlar skóframleiðsla og skóvæðing hins vestræna heims að mansali, barnaþrælkun og kúgun í svitaverksmiðjum þriðjaheimsríkja.

annars er kynjafræði ágæt. sama hversu leiðinlegt fag þú leggur fyrir þig í lífinu geturðu alltaf horft til kynjafræði og sagt "hah! að minnsta kosti er ég ekki kynjafræðingur!". nema náttúrulega að þú sért kynjafræðingur. then youre all out of luck.

- gottlieb

Nafnlaus sagði...

Þið eruð klámskyggnir. Auðvitað er þetta hollt og gott sem umræða og hugsun, hvað skal banna og hvað leyfa. Mynduð þið þó vilja í alvöru leyfa ráðstefnu barnaklámsunnenda ef út í það væri farið? Það væri jú bara fólk að sinna áhugamálum sínum og fara í Bláa lónið með krökkunum.

Nafnlaus sagði...

en myndir þú í alvöru, hr. anonymous, þá vilja að hellt væri í augun á þér rafgeymasýru á meðan þú værir neyddur til að hlusta á fugladansinn á repeat? það væri jú bara einhver fugladansfimur rafgeymaaðdáandi að sinna áhugamálum sínum.

hvað kom annars barnaklámráðstefna nokkru við sem hér er um rætt?

- gottlieb

Mengella sagði...

Já, eða mannætur? Héldu fyrirlestra um steikngu franskra lifra á Hótel Sögu og skelltu sér svo á Grillið, eða skelltu öðrum á Grillið á eftir.

Nafnlaus sagði...

Kemur því þannig við að það er alltaf eitthvað bannað, hvort sem það er gottlieb á grillið eða barnaklámland.

Nafnlaus sagði...

já, frábær röksemdafærlsa. það hlýtur þá að vera í lagi að skella upp firðtjöldum í öll hús og banna frjálsa hugsun. það er hvort eð er alltaf eitthvað bannað.

- gottlieb

Nafnlaus sagði...

Mest þykir mér nú merkilegt að til sé fólk sem geri ekki greinarmun milli þess sem er óæskilegt og þess sem er brot á öðrum. Það að þetta blessaða Feministafélag hafi ekki haft sterkari röksemdafærslur fyrir eigin málefni en svo að hafa fundið sig knúið til að loka eigin spjallborði segir allt sem segja þarf. Ég reyndi nú að taka þátt í því meðan það var og hét, en þegar rökin þrutu var ég iðulega ásakaður um eiginhagsmunasemi og ofbeldisáráttu gagnvart konum.

Hvað kynjafræðingana varðar, þá er þessi gráða þeirra ekki meira virði fyrir málstaðinn en heimspekigráða Morfís-pungsins sem átti að færa honum sannleikann í hönd. Verst hvað hann féll á grundvallarprinsippi Sókratesar sem gerði gráðu hans dauða og ómerka. Sama gildir um kynjafræðinga sem þekkja ekki eigin rök til hlítar, sem varpar á þá þeim ófrægðarljóma fornaldar sem kennir konur við órökræn fyrirbæri.

Í Texas er það kallað að skjóta sig í fótinn.

Nafnlaus sagði...

Hver segir það? Þegar mesta klámhysterían líður hjá er hægt að pæla í því hvað það nákvæmlega er sem sé góð hugmynd að banna og þú getur þá byrjað á að feisa það að það eru allskonar bönn bundin í lög. Frjáls hugsun? Hvað er það nákvæmlega?

Nafnlaus sagði...

hverju ert þú að reyna að koma á framfæri, nákvæmlega? ef þú hættir að tala eins og stóuspekingur heilaþveginn af stóra bróður væri kannski hægt að rökræða við þig um það.

- gottlieb

Nafnlaus sagði...

Blablabla.

Nafnlaus sagði...

já, þetta var einmitt það sem ég hélt þú værir að segja. gott að fá það á hreint.

- gottlieb

Nafnlaus sagði...

Þetta blogg er rugludallasegull.

Nafnlaus sagði...

*Þetta* blogg? Ónei. Við hliðina á bloggum töluvert meira áhrifafólks í landinu er Mengella frekar geðheil.

Eina aðdráttaraflið sem síðan hefur er á fólk sem kann ekki að halda fáfræði sinni leyndri.

Doddi sagði...

Eina aðdráttaraflið sem síðan hefur er á fólk sem kann ekki að halda fáfræði sinni leyndri.

Þetta er glæsilegt komment.

Nafnlaus sagði...

Til þess að brjóta annað en sjálfsmynd:
http://www.santasm.net/ klámleg vísun í móðureðlið, jólasveininn, gleði, brjóstagjöf og þvíumlíkt.

Allt mjög skemmtilegt.

Hvenær fáum við klámtilvísun í Konna og Nonna sögurnar?

Nafnlaus sagði...

Hmm, nú virðist sem fröken Sóley hafi svo sannarlega skorið upp herör gegn öllu þessu ofbeldisfulla klámi. Hún er farin að blokka komment frá þeim notendum sem koma með mótrök. Hún ætlar sum sé að bjarga heiminum með því að drepa alla í honum...

Hún virðist ekki mikill messías þó hana vanti nú ekki komplexinn.

Nafnlaus sagði...

"Sem er merkilegt, því það vill nú svo til að nákvæmlega sama kvengerðin, sú kúgaða, einstæða með brotnu sjálfsmyndina, er undirstaðan í nemendahópi kynjafræðinnar og hefur alltaf verið. Með sömu rökum er því kynjafræðin sama kúgunartækið og klámið."

þetta er eitt það fjarstæðukenndasta sem ég hef nokkru sinni lesið, hreint níð og lygar. Nefndu endilega fyrir okkur dæmi um eina konu í kynjafræði sem er kúguð og brotin, en ég efast um að það sé hægt þarsem þetta er alls ekki rétt...

Bloggið þitt er annars mjög veruleikafirrt og fullt af hatursfullri dellu, ég segi bara til hamingju - tilgangnum þínum er náð, herra kölski/mengella